30 janúar 2008

Að pússa borðið

Ég er frábær og yndisleg, hugrökk, þolinmóð, traust, yndisleg, skemmtileg, fyndin, kaldhæðin, yndisleg, frábær og skemmtileg, útsjónarsöm, fyndin og yndisleg, ótrúleg, uppátektarsöm, hugrökk, gáfuð, og veit einhver hvar ég fæ já og svo er ég falleg, ótrúlega falleg, takk, en veit einhver hvar ég fæ svona tilað - ekki lakk, heldur hunangseitthvað, tilað bera á borð, ég er að verða búin að pússa borðið.

12 ummæli:

  1. Nafnlaus10:56 e.h.

    En sundið?

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus11:10 f.h.

    Já sundið, ég veit það, mig vantar fylgdarmann í sund, svo ég komist, sundið er málið fyrir mig, nú er ég komin með eitthvað í hálsinn svo ég verð að vera heima í dag og vera frábær, og yndisleg,

    gaman að heyra í þér Ellý, þín Elísabet

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus12:40 e.h.

    Mundi radleggja ther byko en oryggisvordurinn thar er vist med mynd af ther...

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus12:44 e.h.

    Ertu að meina hann sé að bíða eftir mér, að hann hafi fengið fyrirmæli: Þessari manneskju á að veita öryggi, - eða er þetta árásartengt,...?

    gaman að heyra í þér Heiðar minn,

    Ekj

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus12:57 e.h.

    Eða er hann kannski skotinn í mér, dettur það nottla seinast í hug, -

    ha ha ha. ekj

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus6:06 e.h.

    Hahahaha ...verð að vera heima og vera frábær.

    Ekkert jafnast á við bloggið þitt Elísabet.

    Fjárfestir þú í wondervaralit?

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus6:14 e.h.

    wondervaralit, nei hvar fæst hann,
    ekj

    SvaraEyða
  8. Nafnlaus6:30 e.h.

    Mér finnst varalit manstu?

    SvaraEyða
  9. Nafnlaus6:51 e.h.

    þá hef ég verið útá túni einhverstaðar, ... tell me more.

    ekj

    SvaraEyða
  10. Nafnlaus7:05 e.h.

    Prella Prina said...
    kleine kleinu kleinuhring, verður þú í þættinum á morgun, ég held ég verði að kaupa mér varalit, ég meina,... koma mér upp safni.

    SvaraEyða
  11. ókei, ég fann einn varalit í dag, ég tók svo vel til, en ég mun bara fjárfesta í einu stykki, annars er ég að koma mér upp lista núna af sætum mönnum, liggur meira á því svona í augnablikinu.

    ekj

    SvaraEyða
  12. Nafnlaus9:05 e.h.

    æ og ó, ég ligg einmitt í einum sætum núna. hjálp! ég er alveg föst dagognótt ...

    já, nógu vont þótt það sé bara á blaðinu og hann hvergi nærri!
    kb

    SvaraEyða