25 janúar 2008

Sundlaugarvörðurinn

Ég hef gaman af öllum vörðum, þjónum og fylgdarmönnum, já og fjósamönnum. Í gær þegar ég sté uppúr Sundhöllinni eftir mína 500 hundruð metra, endurnærð á sál og líkama, sagði ég við sundlaugarvörðinn, gráhærðan úlf í gúmmístígvélum:
Hún er yndisleg laugin.
Já, hún er það blessunin.

18 ummæli:

  1. Nafnlaus3:57 e.h.

    Hrafn biður fyrir bestu kveðju til þín
    M

    SvaraEyða
  2. ja ja hann klikkar ekki hann bróðir minn, hugsaði einmitt til hans á geðdeildinni og allir að spyrja um hann, það er alltaf spurt um hrafn, innan og utan vallar,

    knús í trékyllisvík, the broken front elisabet

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus11:20 f.h.

    500 metra?? Þú ert æðisleg.

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus2:20 e.h.

    takk, nú vantar mig 500 metra í viðbót, en chilla fyrst.

    ekj

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus8:21 e.h.

    Já er chillið ekki jafn mikilvægt og átökin.

    SvaraEyða
  6. jú, hvernig væri að búa til kenningu:

    Chill-Átök-Chill-Átök og svo framvegis.

    Svo einhverstaðar þarna á milli, verðlaunagripirnir, pizzurnar, nammið, kaffihúsin, vá allt þetta.. takk.

    Elísabet

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus9:47 e.h.

    chill-átök-chill-átök segir allt hahahahahaha ja hérna hér þú kemur mér sífellt á óvart

    SvaraEyða
  8. Nafnlaus9:53 e.h.

    einmitt núna er ég hvorki í chilli né átökum, og hvað blasir við,... hrikalegt, á ég að hringja í hann, eða í systur mína, eða fara útí sjoppu og kaupa kók, eða raða einhverju, eða glápa á sjónvarpið,

    chillað í tómarúminu.

    eða:

    nei, ég er alveg komin út fyrir þetta, Ellý, það er rosalega gaman að fá komment frá þér, algjört æði, ég kannski bara fæ mér litla kók, og næ þar með fullkomnu valdi á lífinu.

    þá þarf ég að fara útí stígvél, kíkja á tunglið,

    knús, Elísabet

    SvaraEyða
  9. Nafnlaus11:55 f.h.

    Ég hef svakalega gaman af skrifum þínum mín kæra. Þú ert einstök.

    Þegar þú færð leið á tunglinu máttu gjarnan skoða bloggið hjá dóttur minni: http://www.123.is/10 en þar eru óteljandi myndir af minni tilveru. Lykilorðið færðu á sms formi þegar þú vilt.

    SvaraEyða
  10. Nafnlaus2:30 e.h.

    Já takk, ég vil endilega lykilorð, ég ætla að kíkja á þetta,

    ekj :)

    SvaraEyða
  11. Nafnlaus9:48 e.h.

    Takk, I am going there,

    knús, ekj

    SvaraEyða
  12. Nafnlaus10:07 e.h.

    Hunangsmyndir. Manni hlýnar í hjartanu. Takk, ég skildi eftir komment. ja ja ja.

    SvaraEyða
  13. Nafnlaus10:59 e.h.

    Ja ja ja Vielen Dank Liebchen. Sprichst Du Deutsch?

    SvaraEyða
  14. Nafnlaus11:01 e.h.

    kleine kleinu kleinuhring, verður þú í þættinum á morgun, ég held ég verði að kaupa mér varalit, ég meina,... koma mér upp safni.

    SvaraEyða
  15. Nafnlaus11:02 e.h.

    Þetta er algjört met í kommentum, gerist bara þegar Ellý mætir á svæðið, - hún hlýtur að fá skika í heimsveldinu með þessu áframhaldi.

    SvaraEyða
  16. Nafnlaus12:09 f.h.

    Konur með fallega útgeislun eins og þú þurfa ekki að spandera í varaliti.

    Kleine kleinuhringur hahahaha ég átti þýskan kærasta þegar ég bjó í Deutschland og viti menn maðurinn leiðréttir ennþá og endursendir mér jólakortin sem ég sendi honum.

    Nei ég verð ekki með á morgun.

    SvaraEyða
  17. Nafnlaus10:45 f.h.

    ókei, þá get ég bara notað hann í rúminu, varalitinn meina ég, ;)

    SvaraEyða