27 mars 2008

Smellið á viðeigandi frétt

Jökull Elísabetarson, uppáhaldsleikmaðurinn minn í fótbolta, leikur með Greensboro DYNAMO í sumar, ég held maður verði að skella sér á völlinn.

http://www.fotbolti.net/

Rennið músarfjandanum niður þangað til kemur: Jökull Elísabetarson spilar í Bandaríkjunum í sumar. Flottastur.

4 ummæli:

  1. Hvað þessir drengir allir eru orðnir flottir menn. Ég er í nostalgísku krampakasti.

    Þríbusarnir Jökull, Garpur og Máni - við ættum að gefa út uppskriftarbók...

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus4:45 e.h.

    já, það yrði metsölubók, sérstaklega ef þeir skrifuðu um okkur, knús, elísabet

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus10:32 f.h.

    Ó mín fagra!
    ég datt inn í nostalgíu allra nostalgía við lesturinn á safninu. Man eftir að hafa staðið álengdar við hurðina sem alltaf var kallað mamma í þegar hún var opnuð. og sparkað í boltann í ganginum.verið á staðnum.
    Ég skal standa þarna aftur einn daginn!!!
    ást og kossar
    Lísbet

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus5:54 e.h.

    ó, en undursamlegt að safnið hafi virkað, sum nöfn eru nefnilega steindauð, kannski ég opni safn og þú verður á topp tíu gestalistanum,

    knús, elísabet

    SvaraEyða