12 júní 2008

Eitt merkilegt

Ég átti mann í fjórtán ár, það er langur tími, við vorum mjög ástfangin, svo lentum við í hakkavél alkóhólismans, svo skildum við, hann átti frumkvæðið, þá voru tvíburanir fimm ára. Til að gera langa sögu stutta þá eru sextán ár síðan við skildum og það er fyrst núna sem einhver úrvinnsla virðist eiga sér stað, í draumlífi mínu, ég hef auðvitað unnið úr skilnaðinum með skrifum, á fundum, hjá sálfræðingi og svo framvegis, en mig dreymdi manninn bara ekkert í þessi sextán ár fyrren núna, þá eru tvíburarnir farnir að heiman, og þá virðist einhver úrvinnsla eiga sér stað, þetta er merkilegt, ég virðist hafa elskað þennan mann og ást virðist vera mjög merkileg.

*

Líka af því hún virðist vera lífræn.

15 ummæli:

  1. Nafnlaus11:49 f.h.

    Já, það er skrítið, ástin er vera, sjálfstæð vera, lífrænt dæmi, fiðrildi, tré,

    fegurð, spenna, óvænt, erfiðleikar.

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus11:55 f.h.

    Hvaða maður er þetta, er hægt að gúggla hann?

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus11:56 f.h.

    Já, gúgglaðu hann bara, undir: Maðurinn hennar Elísabetar... ha ha ha ha. Nei fyrrverandi.

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus11:57 f.h.

    ég gúgglaði og það kom: Elísabetu er ekki ætlað að eiga neina menn því hún var svo vond við þá í fyrra lífi.

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus11:57 f.h.

    Nú, hvað gerði ég?

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus11:58 f.h.

    þú hélst framhjá.

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus11:59 f.h.

    sorrí elísaebet þetta var ég friðgerður. þú manst reglurnar.

    SvaraEyða
  8. Nafnlaus12:00 e.h.

    hélt ég framhjá?

    SvaraEyða
  9. Nafnlaus12:00 e.h.

    já og þú borgaðir aldrei vændiskonunum?

    SvaraEyða
  10. Nafnlaus12:01 e.h.

    vændiskonunum?

    SvaraEyða
  11. Nafnlaus12:01 e.h.

    já, þegar þú varst karlmaður í fyrra lífi.

    SvaraEyða
  12. Nafnlaus12:01 e.h.

    er því blandað saman?

    SvaraEyða
  13. Nafnlaus12:02 e.h.

    já, þetta er allt komið í alheimssúpuna.

    SvaraEyða
  14. Nafnlaus12:02 e.h.

    en get ég keypt mér mann?

    SvaraEyða
  15. Nafnlaus12:03 e.h.

    áttu pening?

    SvaraEyða