Þetta var mitt eigið altari
þarsem ég tignaði sjálfa mig
öll kerin full af fortíð.
Nákvæmar leiðbeiningar um mig
og hvernig mig bæri að nálgast.
En þá hellir hann yfir mig textanum
og honum er alveg sama
hvernig hann kemur út,
orðin bara streyma
og ég er alveg að fara að gráta.
Og með þessu sannar þú snilld þína. luv, ER
SvaraEyðagaman að fá komment fyrir ljóð, var í 70ára afmæli hjá braga beib frænda.
SvaraEyðaþetta var elísabet, jök, ég er soldið ánægð með þessi ljóð, þau hafa öll átt sér stað, svona þegar augnablikið er fangað og sleppt lausu aftur.
SvaraEyðaadías, ekj
ég er ánægð með ljóð.
SvaraEyðaLísbet
Hvenær ætlaru að koma vestur kona?
vestur, já þegar ég á pening í fyrsta lagi nema ég labbi,
SvaraEyðaog svo númer tvö ef einhver pakkar, kemur segir Elísabet þú ert algjör aumigni og kemst ekki útúr húsinu nema með hvatningu hjá heilli áhorfendastúku.
en vestur, já endilega. ég var að klára synopsis, en ég ætla byrja hugleiða málið.
knúsabrúsi á pallinum, ellastína
já takk fyrir ljóð blóm
SvaraEyðam.kveðju úr hveragerði
takk, nú er hveragerði að verða ljóðagerði eða hveraljóð,
SvaraEyðafyrir þína ljóðrænu tilveru...
blómin fimmtíu og fleiri
Mig langar yfirleitt tilað deyja á morgnana.
SvaraEyðaEn svo breytti ég um herbergi og það munar.
Stína Ella
Ég er að fara að labba frá Eyrabakka og til Reykjavíkur á næstu helgi.
SvaraEyðaÉg og hin Mikla hin Elísabetin.
Þegar ég er búin að því þá kem ég og pakka fyrir þig og við verðum samferða vestur.
Ég á erfitt með augnablikið á morgnana þegar ég vakna og það er ekki komið á hreint geðið í mér.
Vona svo í nokkrar mínótur að ég þurfi ekki að bíða of lengi eftir að ég ákveði mig, en þori samt ekki að taka af skarið og ákveða skapið, ef ég skildi hafa rangt fyrir mér og verða önnur en ég ætlaði að verða.
Ég ætla að prófa að sofa í Söru rúmi við tækifæri og gá hvort ég vakni frekar eins og hún.
Svo yndislega 4 ára.
Lísbet
eigum við þá að labba til ísafjarðar, og hvað mætum við mmörgum ísbjörnum og hvenær hætti ég að vera svona óskaplega fyndin, þegar bara tærnar eru eftir.
SvaraEyðaen það væri gaman að koma til ísafjarðar anyway, anyhow og takk fyrir þitt yndislega komment.
En ég er alltaf mjög lífsglöð á kvöldin, já og elska auðvitað að sjá morgunsólina,
SvaraEyðaþetta er bara sveiflun, dægursveiflan, einsog hjá silungunum.
Ella Stína sirkusfífl