26 nóvember 2008

Tían átti töfraleik

*

Númer tíu átti töfraleik
tæklaði þetta sjálfur
Þurfti ekkert þykjustumeik
þruman var hann sjálfur.

*

Þetta er um Jökul í síðasta leik, hann tók leikinn í sínar hendur, sólaði þvílíkt, fór inní varnarvegg og útúr honum aftur, skaut á markið og annar nýtti sér frákastið, það var jöfnunarmark og í framlengingu varð mark úr aukaspyrnu sem Jökull tók.

2 ummæli:

  1. Nafnlaus5:48 e.h.

    hæ :)
    vildum bara senda smá trefla-kvðjur! Trefillinn er loksins kominn í notkun og kemur sér svakalega vel í ofur-kuldanum hérna á klakanum!
    takk fyrir okkur ;)

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus7:51 e.h.

    kúúúl, dásamlegt....

    amman ofuramman

    höfundur írlands-íslands trebba.

    SvaraEyða