23 febrúar 2009

In-your-face book

Það hringir enginn í mig, ekki hræða, enginn bankar, símarnir steindauðir, engin komment, ekki orð, ég fór að hugsa, er ég svona leiðinleg, eru allir svona áhyggjufullir útaf sýndar-kreppunni en þá rann það upp fyrir mér, það eru allir á Andlitsbókinni.

*

6 ummæli:

  1. Nafnlaus6:20 f.h.

    ég gerði gjörning um daginn og komst að Því að símar eru old-news og dropp-inn heimsóknir enn eldri.
    "status-uppdate" á facebook er málið.
    Drífðu þig á fésbókina og láttu þig flæða!

    Annars get ég svosem lagt mig fram við að sporna við þessari ömurlegu þróun. Byrja smátt- tek ákvörðun um að kommeta dálítið vel á næstu viku- þá kannski- eftir framfarir og hvatnigaróp í spegilinn- get ég tekið upp símann í lok vetrar.

    Cheers(því á facebook vita sko allir hvað þú heitir)
    Lísbet

    SvaraEyða
  2. Ef heimurinn kemur ekki til þín- kom þú þá til heimsins :) Sjáumst vonand brátt á fésbókinni mín kæra...

    Knús knús- og ég er að koma heim um páskana, um að gera að eiga góða eldhússtund saman- og sundferð væri nauðsynleg líkama og sál.

    Knús aftur, Katrín.

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus12:08 e.h.

    sko, ég er ekki með net, og ímynda mér að ég myndi ekki bara vera á andlitsbókinni heldur handleggja og fótabókinni, rassbókinni og magabókinni, svo myndi ég hætta að skrifa, það er kannski það sem heimurinn er að bíða eftir, úhú.

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus12:09 e.h.

    já sundferð kata, einmitt, ég komst í sund sl. mánudag, útá nesi, labbandi, hausinn á mér, það er blokk í hausnum á mér sem ég þarf alltaf að taka lyftuna, fara inní allar íbúðirnar og uppá þak og útá allar svalirnar ef ég á að komst í sund, ...

    hugarfarið, fökking hugarfarið.

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus9:39 e.h.

    haha- mín kæra- Lísbjörn er hugarburður og draumur minn - en kannski gerast þau djörf og skýra hann það...
    Annars veðja ég á að hann fái nafnið Hálfdán Hálfdán Hálfdánsson....

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus2:24 e.h.

    Lísbjörn ísbjörn... got it.

    SvaraEyða