01 september 2009

Í höfðinu

Svo tók ég allt
af honum
og setti það í kistur.

Það var nóg
að hafa hann í höfðinu.

Þar gat ég alltaf
stjórnað honum

bara þessi nagandi ótti
að höfuðið klikkaði
einn daginn.

2 ummæli:

  1. Jóna Hansen kenndi mér að setja í kistur í kollinum
    í kistunum máttum við innrétta eins og við vildum og hafa skúffur og skápa.
    Skúffa númer 4 var mikilvægust hjá mér, því þar setti ég allt sem ég vildi ekki gleyma.
    Nema qhvað að ég klikkaði aðeins á þessu hjá henni og í staðin fyrir að setja dönskuglósur og annað þarft stuff í skúffuna setti ég ....karlmenn.

    Lísbet

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus9:40 f.h.

    Þetta er ljóð Lísbet, ég er enn að hugsa hvað ég segi um spurninguna þína, kk. Elísabet

    SvaraEyða