10 júní 2007

Konan, djöfullinn og guð

Konan var alveg hrikalega skotin í manni og snerist svoleiðis í hringi í höfðinu á sér hvort hún ætti að hringja í hann en það var alveg sama hvað, hún komst ekki að neinni niðurstöðu svo hún spurði djöfulinn og djöfullinn ansaði: Láttu hann í friði. Þá bað hún til guðs og guð svaraði: Láttu hann í friði. Hva, sagði konan, þið eruð bara sammála, þetta er í fyrsta skipti sem þið eruð sammála svo ég viti til. Já, sögðu guð og djöfullinn, við erum hinsvegar aldrei sammála um hvað sé friður.

2 ummæli:

  1. Nafnlaus11:16 f.h.

    þakka yður frú Lyng, ég held við getum verið sammála um það, og gaman, já virkilega gaman og gleður mitt hjarta að heyra frá yður.

    SvaraEyða