02 febrúar 2008

Finnið og þér munuð be happy

Það þykir rosalega göfugt meðal andans manna að vera alltaf að leita, mannkynið er sent í leitina einsog hvert annað stríð, - um leið og það stendur í lappirnar, þetta þykir mér ákaflega þreytandi, afhverju á ég alltaf að vera leita að einhverju, - vinur minn benti mér á að ef ég væri að leita að tilgangi lífsins hlyti ég að hafa týnt honum, - einmmitt, ég kom með þetta allt í heiminn, og það er miklu betra að fá sér labbitúr og segja: Sjáðu, þarna er sjórinn, fuglarnir, litbrigðin í skýjunum, sólin og þarna kemur vinur minn gangandi, blessaður.

5 ummæli:

  1. Nafnlaus10:12 e.h.

    Ég reyndi að bjóða þér í steiktan Kola en engum síma var svarað þín megin. luvjú.ER

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus10:22 e.h.

    Þvílík harmatíðindi, er hann búinn, ég var inní Jökulsherbergi og með músíkina á, steiktur koli, namm namm nema ég hefði frosið í hel á leiðinni, love you toooo, ekj

    SvaraEyða
  3. já ég var að lesa um 14 stiga frost já ykkur á Íslandi eða meira! Og ég sem er að móðgast hérna yfir smá gjólu í eyrun ... Góðan og glaðan sunnudag ... kb

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus11:20 f.h.

    þetta er algjöööööör viiiðbjjóóóður, en fjöllin er bleik í fjarska, póstkorta-fökking-bleik. úúú...

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus11:21 f.h.

    Annars er Ragnar Ísleifur Nínu og Bragason að skíra hjá sér í dag...

    SvaraEyða