05 apríl 2008

Það blómstrar allt hjá mér

Ástareldurinn blómstrar, það eru komin rauð lítil, agnarsmá blóm á hann, í suðurglugganum, og í norðurglugganum blómstra fallhlífarnar, sem voru brúðarvendir í fyrra, hvítum fimmstjörnublómum með fimmstjörnu inní sér, og ilmar á nóttunni jasmínilminum hinum dularfulla, já svona blómstrar allt í kærleika og trú.

2 ummæli:

  1. hæ fjallablóm, þú hlýtur að syngja fyrir hin blómin fyrst þau haga sér svona fallega!

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus6:08 e.h.

    ég allavega tala soldið við þau, svona hlýlega þegar enginn heyrir til, og dáist að þeim í syngjandi hljóði...

    ekj

    SvaraEyða