Sumir menn eru veggir, þegar maður hefur orðið ástfangin af vegg nokkrum sinnum fer maður að þekkja þessa veggi og samtölin við þá. Gjörið svo vel. Og kommenterið svo.
VEGGURINN
Veggurinn.Þú ert æðisleg.
Ég. Takk. Finnst þér það.
Veggurinn. Ómótstæðileg.
Ég. Takk.
Veggurinn. Þegir.
Ég. Hvað segirðu annars.
Veggurinn. Þegir.
Ég. Ertu þarna?
Veggurinn. Þegir.
Ég. Sagði ég eitthvað vitlaust.
Veggurinn. Þegir.
Ég. Fyrirgefðu.
Veggurinn. Þegir.
Ég. Mér finnst þú æðislegur.
Veggurinn. Þegir.
Ég. Frábær. Gaman að tala við þig.
Veggurinn. Þegir.
Ég. Jæja, ég er þá farin.
Veggurinn. Bíddu aðeins.
Ég. Þegi.
Veggurinn. Ertu þarna.
Ég. Þegi.
Veggurinn. Halló.
Ég. Oh, þú ert svo sætur.
Veggurinn. Þú svaraðir ekki.
Ég. Ha.
Veggurinn. Þú svaraðir ekki þegar ég talaði við þig.
Elísabet þú ert sjálf veggur, hvernig líst þér á að giftast mér og við verðum tveir hljóðir veggir...
SvaraEyðaVeggurinn
Þetta var mjög skemmtilegur texti :)
SvaraEyðaKv.
Stína tengdadóttir
elsku stína,
SvaraEyðayndislegt að fá komment frá þér, hlakka tilað sjá þig og ímynda mér að þú nennir í sund með gömlu konunni þegar þú kemur til landsins,
knús, tengdó
ég hef átt náin kynni við svona vegg.
SvaraEyðaÉg er sko alltaf til í sund :)
SvaraEyðaKv.
Stínó
kæra baun,
SvaraEyðajá einmitt, kynnin geta orðið svo náin að maður getur horfið inní vegginn,
takk fyrir komment.
ekj
hæ stínó,
SvaraEyðajá sund, sund, sund,
hoppum í sund,
tjéngdóó
Þeir eru oft svo heillandi....
SvaraEyðaÁhugaverður texti:)
kv.
Sigga
ójá, stundum veggfóðraðir, eða gylltir, ...
SvaraEyðatakk fyrir komment sigga,
ekj