29 október 2008

Múgsefjun Ellu Stínu

Ella Stína var að keyra á smábílnum sínum þegar hún sá jeppa allstaðar, ógeðslega vonda jeppa, kapítalistar sem eru búnir að eyðileggja líf hennar með græðgi og óskunda, það munaði engu en hún hlypi á eftir næsta jeppa og rispaði hann með nöglunum, jeppi, jeppi, jeppi, Ella Stína sjá jeppa allstaðar og kenndi jeppum um allt sem miður fór þegar hún áttaði sig á að þetta var hluti af múgsefjun og hugur hennar var ekki frjáls, svo hún bað í örvæntingu: Góði guð, ekki láta mig sjá jeppa.

2 ummæli:

  1. Nafnlaus7:22 f.h.

    kreppufíkill segir kreppa í öðru hverju orði.
    Ég vanda mig við að segja það ekki, nema í þriðja hverju, því þá er ekki hægt að hanka mig.

    Ég er að hugsa um að hætta að eiga netið...og temja mér frekar að stelast í vinnunni, eins og Árni Johnsen.
    Lísbet

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus2:42 e.h.

    sleppa, sleppa, sleppa,

    ella stína grá sleppa,

    happ í hendi hreppa,

    fá sér sjónræningjaleppa,

    ekki happ úr hendi sleppa,

    let go and let god,

    fá sér ómega 3 og nei sko, það er sól,

    já ekkert net, frekar línu,

    takk lísbet,

    ella stína kallar

    SvaraEyða