07 september 2009

Ég skal bíða þín

Hann er sendur til mín
á nokkurra ára fresti
tilað veita mér vernd
og líf,

en ég bið alltaf um meira,
að hann komi með mér
í rúmið,

helst að hann verði þar alltaf
þótt ég myndi aldrei þola það,

svona flæki ég málin,

í staðinn fyrir að undrast
og þakka fyrir

og hugsa: Hver
skyldi senda hann?

*

2 ummæli:

  1. ég ætla að koma til þín í heimsókn.
    allt í lagi?
    tuttugasta og fimmmmmta september.
    nema þú sért ekki heima.
    ok?

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus10:07 f.h.

    frábært, tími til kominn og þá verð ég tilbúin með þetta um bókina, og kannski fyrr,

    en velkomin elsku töfradís,

    þín ekj

    SvaraEyða