09 ágúst 2011

Fréttir um hjartað

Einmanaleikinn étur úr hjartanu á mér. Datt þetta í hug á Ægissíðunni þegar ég gekk framhjá húsi þarsem ég var alltaf á miklu fylleríi, ég setti stúlkuna sem var ég í hjartað á mér og þar fékk hún skjól,

og þurfti ekki að éta úr hjartanu.

*

08 ágúst 2011

Þunglyndispunktur

Ég er í þunglyndi, fínt að nefna það hér, af því enginn les bloggið, -

06 ágúst 2011

Gleymskan - ljóð ort 9.janúar 2011

Mig langar að gleyma mér

Gleyma hvað ég heiti,

Hver ég er

Hverja ég þekki

Hvað ég hef gert og hugsað

Gleyma að ég hef fundið til

Stigið skref og klifið fjöll

Gleyma að ég hef dansað

Og líka þegar enginn sér til

Gleyma að ég á borð og stóla

Veggi, hurðir og himinn,

Gleyma börnunum mínum

Og barnabörnunum

Fjöllunum, öldunum, sandinum,

Draumunum, dúkunum,

Hlaupum mínum og útréttingum

Símtölum og sykurkörum

Gleyma öllu sem ég man

Gleyma að ég þarf að fara til læknis á morgun

Og fund á miðvikudaginn

Gleyma það er miðvikudagur

gleyma gleyma

gleyma öllu

nema þér.

*

03 ágúst 2011

Bréf til Péturs Geirs Óskarssonar

Elsku Pétur, ég ætlaði að skrifa þér bréf, en í staðinn færðu þetta ljóð og ég veit ekki alveg hvað ég ætla að segja þér en þannig eru ljósmyndirnar þínar stundum, einsog eitthvað titrandi sem berst inná myndflötinn, einsog það hafi fokið þangað eða læðst, orðið eftir, já einsog það hafi orðið eftir, það er skrítið þetta sem verður eftir, þegar allir eru farnir, rétt ókomnir, nýfarnir, þannig er birtan, stöðugt á flökti, aldrei stöðug, eitt andartak aldrei eins og þannig ert þú sjálfur, ljósmyndarinn, og svo þú feykist ekki í burtu, svo þú verðir ekki eftir, þá verður þú að eiga ljósmyndavél og taka miklu meira af myndum, tilað grípa þetta sem við hin sjáum ekki, eða ekki endilega grípa einsog sagt er um alla ljósmyndara heldur tilað liggja í leyni og bíða eftir því að birtan læðist inn, bíða eftir að skugginn lengist, og þetta gerist allt á meðan þú bíður.

Því í biðinni er lifað lífi sem við erum búin að gleyma, samt er lífið ein bið,en nú veit ég ekki alveg hvert ég er komin eða hvort þetta er bara della en héðan úr höfuðstaðnum er allt gott að frétta eða reyndar höfðinu á mér því ég fer ekki lengra og það er helst að pabbi þinn fái mig tilað hugsa um bláan lit á ganginn, ljósakrónu á baðið eða gólflista, og þetta er frekar óþægilegt því þetta er eitthvað sem er ekki að gerast í mínum haus en ég geri mér þá grein fyrir að ég búi í húsi og sé ástfangin og þá lít ég á hendur mínar og hugsa með mér ég verði að skrifa eitthvað jafnvel þótt það sé algjör della og bull og vitleysa og enn er þetta bréf eitthvað á villigötum og það er þá alltílagi og þá dettur mér í hug að deila einu með þér sem mig dreymdi, mig dreymdi vin minn sem fór með mig inná klósett og á klósetthurðinni stóð: Þegar dagur rann varð hún lost.

Þá uppgötvaði ég að ég á í vandræðum með daginn.

Á nóttunni get ég lag veg blindandi en á daginn verð ég blind, fæ ofbirtu í augun, rata ekki neitt og villist, dagurinn hlýtur að tákna ástina, núið, sólina, birtuna, hlýjuna, dansinn, en hafi maður einhverntíma orðið ástfangin og lent í klessu með ástina þá þolir líkaminn ekki þessa birtu og hlýju og vill skríða inní myrkrið.

Og sturta ástinni ofaní klósettið, - einsog í draumnum var gefið í skyn.

En ástin fer útí sjó, streymir um í hafið, safnar styrk, gufar upp, breytist í rigningu eða lítinn læk sem sytrar úr fjallinu,

og þá verður maður að vera á bíl einsog bílnum hans Péturs Geirs Óskarssonar sem var algjör lífgjöf og þakka þér fyrir lánið, en ég fór samt ekkert útúr bænum tilað heyra í þessum læk en það kom samt svaka rigning hér um daginn og svo er hægt að biðja guð, góði guð viltu hjálpa mér með daginn,....

og þetta bréf eða ljóð til þín, þetta er auðvitað bréf, nema það sé blogg hefur hjálpað mér að skilja afhverju mig langaði svona til Þingvalla að leita að litlum læk,

og þegar ég heyri í honum skil ég að þessi lækur er búinn til úr tárum mínum, svitaperlum, einn daginn þegar ástin brást eða hvarf, en nú er hún komin aftur, sterkari og fallegri en nokkru sinni fyrr í faðmi föður þíns, og þess vegna langar mig að heyra í þessum læk, kannski orðið soldið þráhyggjukennt, en þá veit ég að ÁSTIN ER KOMIN AFTUR, - alveg uppá nýtt, en ég vona þú hafir það gott í sveitinni og það gangi vel að skúra fjöllin og ná þessum skugga á frakka mannsins sem bíður í strætóskýlinu.

Og ég gleymdi aldrei að skrifa þér þetta bréf, ég sveikst bara um það af vantrú á sjálfa mig, vissi bara ekki hvað átti að standa, og svo hélt ég ég hefði kannski ekkert merkilegt að segja og þér myndi þykja það asnalegt, en nú hafa orðin læðst inn einsog í myndunum þínum og bráðum hverfa þau af skjánum,....:)

Allrabestukveðjur, þín Elísabet

06 apríl 2011

Alltaf að sanna sig

Einu sinni var kona sem var alltaf að sanna sig. Hamingjan sanna!

Sönnun

Það væri svo gaman fyrir hann að vera með mér en leiðinlegt fyrir hann að vera með konunni sem ég breytist í þegar mig vantar ást og fer að sanna mig óskaplega mikið.

Galdratalan

Þá hljóðnaði allt og hélt niðrí sér andanum og allur heimurinn lærði 1604.

Snerting

Einu sinni var kona og það snerti hana aldrei neitt, ekki þetta og ekki hitt, og hún snerti heldur aldrei neinn.

*

01 apríl 2011

more of my friends

my friends fear, scary and panic are protecting me from the world. The world is a big monster and they are protecting me, also from reality that tiny bitch always hunting me, all the sounds from water, traffic, radio, whisper from my lover and so on, I rather go into my head and panic, meet panic if you rather want it to be that way, but foremost of all they protect me from my glory.

My glory is such a burden. Uff.

my friends

i have lot of friends, i tell you their names, scary, panic, fear, they are such wonderful friends, they surround me and hug me all the time, they tell me stories, give me informations, constantly, they never leave me, they are always with me.

*

29 mars 2011

Mitt líf

Mitt líf,....

fallegast,

mitt líf

í höndum mínum

takk.

Raunveruleikinn er í næsta húsi

Leiðin til raunveruleikans er ekki löng,
raunveruleikinn er í næsta húsi,

reality is next door.

Stjórnsemin

Hvað tekur við þegar stjórnseminni sleppir?

*

20 mars 2011

Virðing

Hann segir mér
að það sé ekki hægt
að skrifa
um hvað sem er
og hvernig sem er,
hann tildæmis
þurfi að bera
virðingu
fyrir hafinu.

*

Óskar

Hann er rauðbirkinn, hvasseygur,
af því að horfa
út á sjóndeildarhringinn
og nú horfir hann á mig
treystir mér ekki,
vaktar mig, sefur laust,
hann heldur að ég ætli að stinga hann
í bakið,
þessa viðkvæmu brynju
sem hann bjó til
handa mér til að dáðst að.

*

18 mars 2011

Konan

Hún vill eiga
nælonsokka
og aðgang

að sinni frumstæðu visku.


*

15 mars 2011

Maðurinn í brúnni

Það er ekki hægt að flokka allt, til dæmis hvað sé sólarlag, hvað sé himinn, hvað sé haf og hvað sé maðurinn í brúnni sem dreymir um mig.

*

14 mars 2011

Þula

Ég vil njóta

ástin mín

ekki brjóta,

gullin þín,

ég vil fljóta

út á haf

ekki skjóta,

þig í kaf.

*

Samtalið í höfðinu

Með hnífinn á lofti,
það er annað hvort

þú eða ég.

*

Ættjarðarljóð

Ísland er ein sársaukagretta

og bláber.

*

Dauðinn og spreybrúsinn

Afhverju má aldrei hugsa um dauðann
og dauðann eftir dauðann
en það má alltaf vera með spreybrúsann á lofti.

*

Þá heyri ég þetta lag

Ég ætlaði ekki að svara símanum
ég ætlaði að fara útá land
eða loka mig inni
en þá heyri ég þetta lag.

*

10 mars 2011

Skyrtan

Elísabet fór í allar skyrtubúðir á Laugaveginum og komst að því að allar skyrtur eru einlitar einsog menn séu allir á leið í herinn!!! Það var tildæmis enginn með útsauminum: Ég elska Elísabetu á bakinu eða litlum fuglum á ermunum. Elísabet fann loks eina í Herrabúð Kormáks og Skjaldar, hún hét Oscar. Hún var svört einsog nóttin. Elísabet var að hugsa um að sauma útí hana: Ég elska Óskar, ... tilað koma í veg fyrir að hann fari í stríðið.

*

08 mars 2011

Ástin, tíminn og dauðinn

Ég er svo hrædd um að þú deyir
og að við höfum ekki nógan tíma
en ég gæti alveg eins dáið
eða tíminn flogið frá okkur.

Þetta er ansi þröngt sjónarhorn,
dauðinn og tíminn taka ástina í gíslingu
og þar er henni haldið
þangað til hún brýtur sér leið

en það gerir hún alltaf
ef það er ástin.

Samt verður að gæta hennar
og það gerir maður alltaf
ef manni finnst maður hennar verður.

*

Ískaldur

Æ, ég vildi að þú kæmir
til mín
ískaldur
og hrakinn
og ég myndi stinga þér inn.

*

Ískaldur II

Æ, það væri gaman
ef þú bankaðir uppá
ískaldur
og svalandi.

*

07 mars 2011

Að tilheyra

Þú tilheyrir mér
og ég er að hugsa um
að kaupa undir þig
glerskáp,
það gæti bara komið
móða á glerið,
svo ég ætti að setja þig
inní ísskáp
nema þú gætir étið
allan matinn
svo ég gæti sett þig
inní kústaskáp
en þá myndi mér bregða
í hvert sinn
sem ég opnaði skápinn
og þú værir önnum kafinn
við að sópa
ég gæti raðað þér
einhverstaðar
með skónum
postulínsstyttunum
geisladiskunum
en það er of mikið vesen
að raða þér í rétta röð
ég gæti haft þig hjá mér
en þá þyrfti ég að tala
við þig og ég hef ekkert
að segja
nema að ég elska þig.

*

útlegð 4

Hausinn á mér er í útlegð, þar fer fram mikill útlegðarbissniss, ég fékk útlegðardóm, þetta er yndisleg útlegð, ég þarf ekki að hafa áhyggjur af neinu, ég gref gröfina mína sjálf.

*

útlegð 2

Ég hef verið í útlegð, ég átti hvergi heima, ég bara drakk og dópaði, mér var sama um allt, ég gaf skít í allt, allir aðrir voru hálfvitar og voru að hugsa hálfvitalegar hugsanir, ég átti enga þvottavél og varð að þvo einhverstaðar, ég fór á barinn og svo í partý, ég var komin með vonda húð af öllum andlitsförðunum sem ég fékk lánað eða stal einhverstaðar, ég var komin með bjúg og augun sokkin, svaf hjá einhverjum, og hverjum sem var, ég hafði ekki samband við vini eða fjölskyldu, ég var auðvitað í leðurjakka,merktum í bak og fyrir; útlegðinni.

*

Útlegð 1

Að standa utan við allt,

allt,

ekkert eftir

nema allt.


*

Útlegð

Að standa utan við allt,

allt,

nema skerandi ýlfur rándýrsins

á ísnum,


eða í kokinu,


ég man aldrei

hvort er hvort.

*

Skáldið

Hann kallar mig ljósið eða blómið, ég veit ekkert hvað ég á að kalla hann, ég gæti kallað hann skáldið.

03 mars 2011

Opinberunarljóð

OPINBERUN

Það var opinberun
þegar ég sá hann
sitjandi á hækjum sér
að vinda gólftuskuna
þessar hendur gátu
greinilega kreist blóð
úr hjartanu,
augun skorið mann í beitu
og líkaminn svo liðugur
að hann gæti staðið teinréttur
við altarið.

*

Eplið

Svona liðugur gæti hann
birst mér einsog snákur
sem segir mér
að bíta í epli
þótt það sé ekkert epli.

*

Eitt lítið ljóð á fimmtudegi

Það er kannski þess vegna að ég er hrædd við ástina,

að alheimurinn hverfur, allt hverfur nema hann,

ég er á valdi fullkominnar einbeitingar,

með augun föst á uppskriftinni.

*

Ástin

Raunveruleikinn er farinn
því ástin er hér,
hún hefur tekið yfir,
úthýst öllu nema eigin hugmyndum,
ég fyrir mitt leyti er orðin leið á ástinni,
ég vil bara fá að ríða,
strá blómum,
smyrja olíu,
klæðast silkinærfötum,
svörtum nælonsokkum,
og svo framvegis
en ástin neitakk,
hún nennir aldrei að ríða.

*

Tár í augun

Hendurnar á honum
hnén, bakið,
og augun.

Ég set hendurnar
í efstu hillu,
hnén í skúffuna,
bakið inní skáp

en augun,

ég læt tár í augun.

*

Opinberun (óunnið)

Ég fékk opinberun
þegar ég sá hann
sitja á hækjum sér
að vinda gólftuskuna
alveg einsog kórdrengur í kirkju
eða sjálfur brúðguminn
að þrífa upp æluna
eftir mig.

*

26 febrúar 2011

Óskar

Hann er rauðbirkinn, hvasseygur,
af því að horfa
út á sjóndeildarhringinn
og nú horfir hann á mig
treystir mér ekki,
vaktar mig, sefur laust,
hann heldur að ég ætli að stinga hann
í bakið,
þessa viðkvæmu brynju
sem hann bjó til
handa mér til að dáðst að.

21 febrúar 2011

Minnismiði....

Alkóhólismi er ömurlegur, -

best að muna það!

Það er til lausn....................

11 febrúar 2011

Þögull kastali

Draumurinn sem mig dreymdi um þögla kastalann.

10 febrúar 2011

Ástarsamband við sjálfa mig

Ég elska mig þegar ég er leið
Ég elska mig þegar ég er reið
Ég elska mig þegar ég er fyndin
Ég elska mig þegar ég er kaldhæðin
Ég elska mig þegar ég er í sundbol
Ég elska mig þegar ég er í rosa stuði
Ég elska mig þegar ég er hrædd og þori engu
Ég elska mig þegar ég er óákveðin
Ég elska mig þegar ég er með verk fyrir bringubeinið af því það var einsog ég fengi spjót í það þegar ég var beitt ofbeldi, en bringubeinið heldur rifbeinunum saman og brotnar oft við endurlífgun
Ég elska mig þegar sólin sest
Ég elska mig þegar mér finnst ég ófullkomin
Ég elska mig þegar enginn kemur
Ég elska mig í meðvirkni, alkóhólisma, geðhvörfum
Ég elska mig í húsinu
Ég elska mig þegar ég er þunglynd
Ég elska mig þegar ég er ör og fer yfir strikið
Ég elska alla líkamspartana af mér
Ég elska mig þegar ég er frek

Ég elska mig þegar ég er sæt og skemmtileg
Ég elska mig þegar ég er huglaus
Ég elska mig þegar ég lýg
Ég elska mig þegar ég stel
Ég elska mig þegar ég get ekki neitt og þori engu
Ég elska mig þegar ég er skítug
Ég elska mig þegar ég er geðveik og ásakandi
Ég elska mig þegar ég beiti ofbeldi, eða það er eina sem ég get ekki elskað
Ég elska mig þegar ég klikka á hlutunum
Ég elska mig þegar ég sef yfir mig
Ég elska mig þegar ég fæ þennan verk
Ég elska mig þegar vindurinn blæs
Ég elska mig þegar sé kertalogann
Ég elska mig þegar ég sé fallegan karlmann
Ég elska mig í kærleika og þegar ég sé kærleika
Ég elska kærleika og þakklæti
Þakklæti Þakklæti milljón sinnum
Ég elska mig
Ég elska litlu stelpuna sem er alltaf að skammast sín og heldur hún sé klaufsk og klunnaleg þegar hún er fíngerð og öll af vilja gerð

08 febrúar 2011

Of pjöttuð

Einu sinni var kona sem átti erfitt með að halda mörk. Hún var svo pjöttuð.

07 febrúar 2011

Að vera veikur. Sjá það bara veika. Horfa á það veika.

24 janúar 2011

Hamingjan

Hamingjan getur verið alveg róleg, hún er hjá mér.

*

Samtal við fjall

Ég: Kæra Fjall, viltu ekki láta hrynja úr þér.

Fjallið: Ég geri það sem mér sýnist, mér finnst gaman að sjá þetta litla fólk engjast fyrir neðan mig.

Ég: Ertu einmana?

Fjallið: Einmana, ég nei.

Ég: Talar enginn við þig.

Fjallið: Nei, auðvitað ekki, það talar enginn við mig, það halda að ég sé dautt... fjall.

Ég: En ég er að tala við þig, og ekki láta hrynja úr þér.

Fjallið: Ég verð að sýna mátt minn og megin.

Ég: En eigum við ekki að gera eitthvað skemmtilegt.

Fjallið: Einsog hvað?

Ég: Þú segir mér frá öllu sem þú hefur séð og heyrt gegnum aldirnar.

Fjallið: Ég er löngu hætt að sjá og heyra, fólk fattar ekki að fjöll eru lifandi.

Ég: Ég hef heyrt fjöll anda.

Fjallið: Vertu ekki að þykjast vita allt um fjöll, þú ert bara auðvirðileg manneskja.

Ég: En ef það hrynur úr þér þá er voðinn vís.

Fjallið: Voðinn vís, voðinn vís,.....

Ég: Ég vil lifa áfram og elska.

Fjallið: Sagðirðu elska.

Ég: Já.

Fjallið: Segðu mér frá ástinni og ég læt ekki hrynja neitt úr mér.

Samtal við fjall

Jæja, nú er ég búin að kveðja sorgina, hræðsluna, óöryggið og geðveikina, hvað ég þá eftir, samtal við fjall.

Stormur í höfðinu

Ég vaknaði með storm í höfðinu, svo fékk ég mér kaffi, og Garpur kom í heimsókn, ég fór með hundana í einn og hálfan tíma meðfram sjónum, hugsaði ég þyrfti ekki alltaf að vera hella úr hjartanu mínu heldur líka taka inn, svo ég tók inn dansandi þang, sofandi steina, brotna öldu og æðarhjón, og þá helltist óöryggið yfir mig, þetta gamla eldgamla óöryggi, að þú myndir fara, og tilað koma í veg fyrir það ætti ég endalaust að vera gefa af mér, tæma hjartað fyrir þig, þangað til ekkert væri eftir nema ein stór hola, og ég beinagrind, snauð búin að gefa allt sem ég á. Af því ég er aldrei nógu góð.

Óöryggi og hamingja

Ég gekk meðfram sjónum tilað fylla á hjartað, sá dansandi þang, brotna öldu, æðarhjón í öldunni, máva á stjakli, sofandi steina, og þegar ég hafði fyllt á hjartað varð ég svo óörugg, að ég hélt hann væri að fara frá mér, en skildi að þetta er gamla óöryggið sem aðeins verður kveðið niður með hamingjunni.

23 janúar 2011

Stundin í strætóskýlinu

Þegar allt annað er farið mun þessi stund í strætóskýlinu ríkja yfir heiminum einsog sumarnóttin.

21 janúar 2011

Hjartað á vinnslustigi -

Hjartað er nefnilega búið að vera opnast og það er fullt af viðkvæmni þetta hjarta, gleði, skringilegheitum og öllu. Ég hélt það væri í lagi að það opnaðist, þar væri öllu raðað í stafrófsröð og svo framvegis, en þá er þetta heitt, mjúkt lifandi hjarta, þar er líka gömul sorg og hræðsla svo ég gaf guði hjartað því þannig þorir hjartað að segja; ég elska þig.

Því þú opnaðir hjartað þótt ég vilji allsekki viðurkenna það, því ég þykist geta allt sjálf en verð að viðurkenna að þennan lás gat ég ekki opnað.

Þú helltir hjartað mitt fullt af ljósi úr myrkrinu þínu.

17 janúar 2011

Ljóð

Mig langar að gleyma öllu nema þér
svo ég geti munað þig.

09 janúar 2011

Sorgin kvödd

Í dag kvaddi ég sorgina og sagði, ég er búin að fá nóg, ég vil ekki lengur smjörlíki ofaná brauðið mitt og mig langar að sofa í almennilegu rúmi, mig langar að eiga bíl og komast eitthvert, mig langar í flotta skó, mig langar mest af öllu í góðan kodda, svo nú bið ég þig kæra sorg um að yfirgefa mig og kveðja, ég er búin að kynnast þér, vertu sæl.

*

Ljóð um ástina eða gleymskuna

Mig langar að gleyma mér

Gleyma hvað ég heiti,

Hver ég er

Hverja ég þekki

Hvað ég hef gert og hugsað

Gleyma að ég hef fundið til

Stigið skref og klifið fjöll

Gleyma að ég hef dansað

Og líka þegar enginn sér til

Gleyma að ég á borð og stóla

Veggi, hurðir og himinn,

Gleyma börnunum mínum

Og barnabörnunum

Fjöllunum, öldunum, sandinum,

Draumunum, dúkunum,

Hlaupum mínum og útréttingum

Símtölum og sykurkörum

Gleyma öllu sem ég man

Gleyma að ég þarf að fara til læknis á morgun

Og fund á miðvikudaginn

Gleyma að það er miðvikudagur

Gleyma gleyma gleyma

Öllu nema þér.

*

Þrýsta þér að vörum mér

teyga í botn.

28 desember 2010

Halló....

jæja gleðileg jól, mánuður síðan ég hef bloggað og þú hefur ekki kommenterað enda er það í lagi, þetta er dómssalur ekki blogg en ég er búin að gefa út nýja bók,

JÖKULL OG KRISTÍN GENGU Í HJÓNABAND,

svo komu jólin og bráðum koma áramótin, Alexía kom í heimsókn í dag og sagði að hún þarna konan í bókinni skyldi koma út því hún væri orðin fræg, en hún vildi ekki koma út því hún var að bíða eftir að verða fræg.
Þú ert fræg.
Er ég fræg.
Já, það var kona sem skrifaði um þig.
Hvaða kona, hvaða kona?
Þú ert fræg fyrir að vera í lokuðu herbergi.

****

Og svo bráðum set ég inn mynd af brúðhjónunum, þeim sætustu í heimi.

26 nóvember 2010

Listaverk

Kannski á ég að gera meira af því að heilsa og kveðja, ég man eftir því þegar ég fæddi tvíburana fór ég í fæðingarorlof þegar þeir voru tveggja ára, þegar við Ingi skildum fór ég yfir helgi eða svo að Búðum á Snæfellsnesi, anda, búa til pláss, taka breik, staðfesta, eitthvað gamalt var að hverfa, eitthvað nýtt að taka við, - ég hef stundum hugsað um það hvað ég gæti gert af því tvíburarnir fluttu að heiman, mig langar að gera bíómynd um útidyrahurðina og orðið mamma. En það er nóg að skrifa sögu um það, eða frásögn.

Útidyrahurð opnast. Mamma. Útidyrahurð opnast. Mamma, mamma, mamma, mamma. Útidyrahurð opnast. Mamma. Útidyrahurð opnast opnast opnast opnast. Mamma, mamma, mamma. Skellist aftur. Mamma. Skellist aftur skellist aftur opnast opnast mamma opnast mamma skellist aftur mamma mamma mamma opnast skellist aftur skellist aftur opnast mamma mamma. Mamma. Opnast.

Einsog þegar ég hélt uppá afmælið mitt og uppgötvað hvílík afrek ég hafði drýgt sérstaklega kannski síðast liðin fimmtán ár eða tuttugu ár, eða rúmlega þrjátíu ár, og nú var eitthvað nýtt að taka við, þá hvernig á ég að kveðja þennan tíma, og fagna nýja tímanum. Með því að fara burt,

hvert langar mig að fara?

Það tekur því ekki

Svo eru þessir pokar við munnvikin, kiprur, pokar, og baugar, hálsinn í fellingum, allir orðnir eitthvað svo brosmildir eða þá herptir.

Nítjánhundruðogeitthvað...

Ég man þegar árin fóru að koma sem byrjuðu á tvöþúsund og eitthvað, þá fylltist ég svo mikilli eftirsjá til áranna nítjánhundruðogeitthvað, ég virkilega syrgði þau og fannst þau alvöru ár og talan nítjánhundruð sem ég var miklu meira tengd, þetta var kannski ekki þunglyndi en jaðraði við það, eftirsjá og söknuður og vitneskja um það að ég fékk engu ráðið um tímann.

Að eldast

Þegar ég varð fimmtug fékk ég áfall, mér fannst ég og allir orðnir svo gamlir, alltí einu breyttist skynjun mín á tímanum, mér fannst að ég ætti tíu ár eftir ólifuð, svo væri allt búið, um leið byrjaði heilsu minni að hraka, ég fékk mígreni, stirðleika, og allt hvað eina. Ég gerði mér grein fyrir að ég myndi deyja og hvað yrði þá um dótið mitt, þá myndi einhver koma einsog ég kom til ömmu þegar hún var dáin og horfði á inniskóna hennar, byrja að sortera allt og pakka, henda og geyma sumt og eiga annað. En líkami minn væri liðið lík, stjörf, ég myndi aldrei vakna aftur. Ég horfði á jafnaldra mína einsog hvert annað undur, hvernig aldurinn tók þá til sín, gerði eina hrukku hér, bætti við einum drætti hér, litaði hár grátt, við fitnuðum, varirnar þynntust, samt talaði enginn um þetta, það var einsog þetta væri upphafið á langri ferð, ég starði á þetta í hryllingi og forundran og hugsaði hvort þessi sem ég var að horfa á væri að hugsa það sama, að ég væri að eldast, - og bráðum væru mínar fögru hendur alsettar hrukkum en hendurnar voru það sem elskaði mest við ömmu mína og voru undraverk því þær voru ekki einsog mínar.

Jólaballið

Allt í einu urðu allir svo gamlir
með hrukkur og gleraugu,
alla þessa óvæntu drætti hér og hvar
gráhærðir og með grásprengt hár
og milt yfirbragð, milt augnaráð
augabrýrnar hurfu, varirnar þynntust,
hár stungust útúr andlitinu,
nefið stækkaði og eyrun,
já einn daginn vaknaði ég upp á jólaballinu
á Hótel Borg sjö ára gömul
og þá voru allir orðnir svona gamlir.

uj

Ég er að hugsa um að læra að lifa með þessu þunglyndi, það er reyndar mest á morgnana og á kvöldin verð ég að gæta þess að fara ekki yfirum af snjöllum hugmyndum og kæti, í staðinn fyrir að losna við þetta þunglyndi, segi ég hæ þunglyndi. Fáðu þér kaffi. Svo á ég að skrifa miklu meira, skrifa geðveikina niður ha ha ha,.... ég skrifa þig niður.

22 nóvember 2010

er í þunglyndi

08 nóvember 2010

Gleymska

Maður á víst alltaf að muna allt, og nú er gleymskan helsti óvinurinn, maður á muna söguna sína svo maður geri ekki sömu mistökin, fer á AAfundi væntanlega tilað muna, gleyma ekki, en þá hafa ekki verið tíundaðir kostir gleymskunnar.

Storm

It was storm at my house

and storm at his

between us

the Atlantic Ocean

with storm

so I imagine

his arms around me

and forgot.

Bón

Prófaðu að vera glöð í eina mínútu,

bara eina mínútu ekki hugsa um innbrotsþjófa, flugslys og hörmungar,

ég er bara að biðja um eina mínútu,

eina mínútu.

ástfangin af mér, -

Vinkona mín segir ég eigi að vera ástfangin af mér, - ég kem alltaf aftur og aftur að því, en hvernig fer það fram. Einsog fara snemma að sofa, eða hvað?

En ég er með andþrengsli, ég hef ekki haft andþrengsli í tíu ár eða ég veit ekki hvað lengi, þau byrjuðu í september eitthvað í sambandi við kærasta sem ég átti þá og hefur farið hljótt, - en þá komu þessi andþrengsli, þau voru viðloðandi í mörg ár,

og svo eru þau nú búin að vera uppá síðkastið, næ ekki andanum.

kannski vantar mig sól og ást og enga hræðslu.

07 nóvember 2010

Leiðinn, -

Leiðinn hefur alltaf bjargað mér og gerir það vonandi núna, -

því ég er orðin svo leið á því að LÁTA FÓLK VERA AÐ SKAMMA MIG

og og og

ÉG ER ORÐIN LEIÐ Á ÞVÍ AÐ VERA EKKI NÓGU GÓÐ, -

lifi leiðinn!!!

06 nóvember 2010

að sleikja frímerki

er galdur, eða hvar annarstaðar lætur maður munnvatn sitt!?

25 október 2010

Draumur 25.október

Dreymdi ég var við fljótsbakka, þar bullaði kröftugt jökulfljót, heill hópur þurfti að skríða eða ganga yfir örmjóa brú eða planka tilað komast hinumegin, ég ákvað að fara ekki, en náði að bjarga unglingsstelpu uppúr vatninu, hún var næstum drukknuð, hvarf í vatnið en kom upp aftur. Linda var hinsvegar fremst í flokki í hópnum.

Hinumegin á bakkanum var stórt, hvítt fremur glæsilegt hús.

Óöryggi mitt birtist á furðulegasta hátt, - það þarf allsekki að birtast sem óöryggi heldur á annan hátt.

*

Hvað er að vera elskuð... elskaður?

24 október 2010

Draumur 24.október

Mig dreymdi ég væri á gamla Reynimel og byggi í kjallaranum einsog ég gerði um tvítugt og líka sautján ára þegar Kristjón kom í heiminn, í einu herbergi ónotuðu var ek. geymsla en samt ekki geymsla en þar voru nokkur málverk, svo fannst mér manneskja af málverkinu vakna upp og koma til mín, og ég varð hrædd og hélt hún væri innbrotsþjófur en í rauninni held ég hún hafi vaknað upp annaðhvort úr geymslunni eða málverkinu, - hún kom nálægt mér, ég sá að þetta var ég en var samt hrædd, við sjálfa mig, - ég fór útúr húsinu og var að reyna að hringja á lögregluna, - en málið er ég að veit ekki frá hvaða tímabili þessi stúlka var, -

Höfnun

Ég er með stanslausa höfnunarkennd, ef ég lít til hægri fæ ég höfnun, ef ég lít til vinstri fæ ég höfnun, svo ég lít hvorki til hægri né vinstri.

21 október 2010

Hver ræður?

Drottningin: Ég er drottningin sem ræður öllu.

Ég: Ég veit það.

Drottningin: Og ræð ég ekki öllu?

Ég: Jú, þú ræður öllu.

Drottningin: Það ert þú sem segir mér það.

Fugl í lófanum

Vinátta, ég veit ekkert um vináttu, - jú vinátta er þegar vinkona mín segir
: Mundu hver þú ert?
: Hvernig líður þér blóm?
: Hvernig hefurðu það?

Þegar einhver tekur í höndina á mér, þegar einhver dinglar, þegar einhver sest í bláa sófann, þegar einhver sest við eldhúsborðið, þegar einhver kemur með fugl í lófanum, -

*

Fólk er með fugl í lófanum,
allir eru með fugl í lófanum,
svo ekki kreppa hnefann
þá getur fuglinn kramist,
opnaðu lófann þá sést fuglinn
eða flýgur burt,
og hafðu lófann opinn
svo fuglinn geti sest
í lófann aftur.

Þessi fugl í lófanum
sést ekki nema á sorgarstundum
og einstaka gleðistund,

það veit ég
því vinkona mín
kom einu sinni
þegar pabbi minn dó
hún rétti fram lófann
og mér sýndist vera fugl
í lófanum

og nú þrjátíuárum seinna
veit ég að það var rétt,
það er alltaf fugl
en hann sést ekki alltaf,....

*

Viðurkenning - höfnun

Getur verið að ég þoli ekki þegar einhver hefur raunverulegan áhuga á mér, - hvað er það, er það þá einhver nýr staður sem ég þarf að fara á, hreyfa mig úr stað sem heitir HÖFNUN og fara á stað sem heitir VIÐURKENNING.

Það er auðvitað alveg hætt að feika það, en ég er að tala um raunverulegan áhuga, raunverulega viðurkenningu frá botni hjartans, -

þetta er einsog að koma í nýtt hús - ég veit ekki hvernig ég á að haga mér.

*

Drottning sem ræður yfir öllu

Höllin: Ég hef ákveðið að hætta að vera höll en vera drottning.

Ég: Drottning?

Höllin: Já, það er nákvæmar.

Ég: Drottning einmanaleikans.

Höllin: Drottning yfir öllu.

Ég: Ókei.

Höllin: Hljómar það ekki vel.

Ég: Ertu þá drottning yfir mér.

Höllin: Já, þú gerir einsog ég segi.

Ég: Ég er farin.

Höllin: Þú getur ekkert farið.

Ég: Bless.

Höllin: Ég ræð yfir blessinu.

Ég: Þú ræður ekki yfir blessinu.

Höllin: Bless.

20 október 2010

Það var eitthvað fallegt sem ég gleymdi, ég man það ekki lengur, kannski kemur það,....

Munið hrunið, munið hrunið, munið hrunið, -

ekki gleyma því, fáið það á heilann, látið heilann fyllast og ekki hugsa um neitt annað, -

Útkoma

Búin að finna út að þetta var gott. Maður á að standa með sjálfum sér.

19 október 2010

Lagið

http://www.youtube.com/watch?v=TejJDFt6Tkk

Aftengjast,...

Aftengjast,.....

Fólk sem brosir mikið er stórhættulegt, ég hrædd við fólk sem brosir mikið

Of stór skammtur,... of stór skammtur, .... of stór skammtur

Fékk nóg!!!

Ég fékk bara nóg af því að ég ætti að ímynda mér eitthvað hræðilegt, skelfilegt, - algjörlega nóg, uppí háls, uppí kok, ég hef verið að ímynda mér eitthvað hræðilegt frá því ég var lítið barn og þegar ég var beðin um að ímynda mér eitt hræðilegt í viðbót þoldi ég ekki meir, - ég gjörsamlega trompaðist.

Áttin snérist, -

Ég er mjög ólík sjálfri mér, ég vil bara sofa, ég vil ekki vinna, ekki borða hollt, ekki fara í sund, í gær hélt ég að myndi verða bráðkvödd, bara um hábjartan dag, ég fattaði í morgun að heilinn á mér er girtur af með þráhyggjum, svo las ég komment á Facebók að maður á að hoppa yfir girðingar, eða brjóta þær, "tilþess eru girðingar", .... en ég hef enga döngun í mér til þess og þó, ég er að skrifa þessi orð, ég er búin að fá leið að skrifa eitthvað inní tölvunni, ég vil að það birtist strax og allir viti hvað ég eigi bágt, ég fór alltíeinu að hugsa hvað það hefur verið erfitt að veikjast á geði 2o ára gömul, ég meina það eru 32 ár síðan, afhverju er ég að hugsa um það, ég kveikti á rauðu kerti og fékk mér te úr þurrkuðum jurtum, himneskt og undursamlegt, það er sunnanátt, áðan var suðvestanátt, -

18 október 2010

Mundi alltíeinu eftir guði, -

Þá mundi ég alltíeinu eftir guð og þá leið mér betur, þá þurfti ég ekki að kljást við þessar sveiflur, heldur væri þetta í guðs höndum. Yfir til þín guð, -

Jafnvægið fór... þessvegna eru sveiflurnar, ef sálin mín er bátur...

Áfall

Ég varð fyrir áfalli fyrir nokkrum dögum, síðan er ég búin að vera í sveiflum, ég fer hátt upp og langt niður, - vonandi fer þetta að jafnast út bráðum, -

15 október 2010

Mjög merkileg upplifun, -

Óttinn er á undanhaldi, ég fann það í dag þegar hann yfirgaf mig að það var einsog þar kveddi minn besti vinur.

*****

12 október 2010

Gamalt bank og veiklulegt

Einangrun, hún gerir mann skrítin, hanga alltaf heima, raða öllu, - en þannig er að ég var komin með fimm handrit þegar ég fór á Facebók og síðan hef ég ekki klárað neitt af viti, jú bænabókina, en svo eru eftir önnur handrit, ljóð, saga, leikrit, og ég ætlaði að fara skrifa eitthvað af því þegar alltíeinu gömul saga fór að banka uppá.

11 október 2010

Hugsar um bók

Ég er búin að þvo eina þvottavél í dag
og nú er ég að þvo aðra
áðan var maður að moka útí næsta garði
ég kíkti útum gluggann
og sá glytta í hann,
ég spjallaði við Mánadís
hún var að æfa sig á fiðluna,
og nú er ég búin að kveikja á stóru tölvunni
því ég er að hugsa um bók.

07 október 2010

Allt að

Það er alltaf allt að hjá mér, þegar ég fer á klósettið lít á klístruðu blómin á veggnum og hugsa það væri nú ráð að setja flísar þarna, sópa mylsnuna saman í horninu, raða uppá nýtt í handklæðaskápnum, færa geymslukassann inní geymslu, þrífa vaskinn, raða klósettpappírnum, strjúka af glerinu á myndinni fyrir ofan klósettið, þrífa spegilinn, og svo framvegis,

og svo hugsa ég um hvort ég eigi að sofa uppi eða niðri, niðri eða uppi og hvort ég eigi að kaupa nýjan bókaskáp, eða setja einn bókaskápinn aftur á gamla staðinn og hvað ég eigi þá að setja í staðinn fyrir hann, og hvort ég eigi kannski að fá mér vinnustofu, eða læra á píanóið, slípa upp gólfið í stofunni, færa gula stólinn aftur inní stofu, gera við saumspretturnar í gula stólnum, hvort ég eigi að mála gluggana að utan, sópa tröppurnar, hengja útúr vélinni, hafa pelsinn inní vinnuherbergi, í gestaherberginu eða fatahenginu, hvort ég eigi að láta gera við ofninn í stofunni, láta setja þrefalt gler í litla gluggann og hvaða vasi eigi að standa í glugganum, svona gef ég mér engan frið,

og held hausnum, hugsunum mínum alltaf uppteknum, aldrei sátt við hlutina einsog þeir eru, og aldrei sátt við sjálfa mig einsog ég er og þar af leiðandi aldrei sátt við annað fólk einsog það er.

Svo nú ríkir sáttin. Það er ekkert að. Það er allt í lagi.

Samtal

Hann: Ég varð bara ástfanginn af þér.

Hún: Já einmitt, og hvenær hættir það!

Lokun, -

Alltaf þegar ég eignast kærasta lokast ég.

Halló -

Það small eitthvað í samband,....

eða eitthvað datt úr sambandi sem hafði verið vitlaust tengt, -

05 október 2010

Fjölskyldumótmæli.... voða sætt, -

Fjölskyldan er gróðrarstía eineltis, ....

Erindi í októberroki

Rok. Kona flýtir sér heim. Síminn hringir.

04 október 2010

Harmsögur

Hún hélt sér uppá því að segja harmsögur af sjálfri sér, -

*

03 október 2010

Skilningur

Nú skil ég afhverju ég hef fitnað; það er vegna þess að ég er hætt að tína saman playmo-kallana.

Bless, Elísabet með ljósið