06 desember 2012

Jólaserían

Ég var búin að fara til sálfræðinga, geðlækna, Eyrarbakka, KVennaathvarfið, Geðdeildina, panta pláss á Hælinu, fara á fundi, tala við trúnaðarkonurnar, vini mína, fjölskylduna, hafið, fjöllin, veginn, framliðna, ég spurði jafnvel húsið en ég fékk engin svör fyrr en ég setti upp jólaseríuna,....

Ástin er búin, hún flaug útum hjartað, ísköld og skjálfandi, beint í eldinn.

Öðru fólki dýrmætir

Hann sagði að ég hefði ekki keypt neitt til búsins, og ég benti honum á að ég hefði keypt rómantísk gluggatjöld og fallega matardiska. Þess utan hefði ég keypt fiskispaða, ausu, steikargaffal, hnífapör, potta og pönnur, sparistell, og svo hefði ég keypt húsið, en hann hefði bara ekki tekið eftir þessu, eða tekið þessu sem sjálfsagðan hlut eða svona nöldraði hann einsog kerling um alla hluti sem öðru fólki voru dýrmætir.

05 desember 2012

Ástin er búin

To do listi

Skreyta gluggana Fara til tannlæknis Skila skýrslu Finna stað Athuga með sloppinn minn Dansa Bursta kálfana

Ég þarf að skila virðisaukaskattsskýrslu í dag

Rétta svarið

Lygin er verst, þá hverfur raunveruleikinn, þegar er logið að mér, ég hef ekki logið í tuttugu ár en nú er ég síljúgandi, þess vegna verð ég svona flækt og allt óskýrt, raunveruleikinn horfinn, hann bauð mér útá Hróa í gær með blómum og kerti og einum bolla, og bara tilað geta svo bankað uppá og spurt hvort hann gæti fengið lánaða dómgreind hjá mér, um hvort hann ætti að búa hér fram í apríl eða maí, þótt við værum ekki saman, og af því honum líkaði ekki svarið stóð hann upp og gerði sig líklegan tilað fara, .... það er einmitt þetta, þessi ömurlegi leikur, einsog maður sé ekki manneskja, heldur einhver vél tilað koma með réttu svörin, ég spurði hann líka hvort hann ætti að sofa hér eftir við vorum saman en þá vildi hann fara niður og ég klikkaðist það var ekki rétta svarið.

30 nóvember 2012

Ekkert gert fyrir mig

Á meðan ég var í Kvennaathvarfinu og síðar Geðdeildinni var hann að innrétta íbúð handa sér, lítið hreiður í kjallaranum, keypti húsgögn og styttur, lét stækka myndir og alltaf sömu myndina af honum, bróður hans og pabba, og hann er búinn að vera ástarsorg, að vísu trúi ég ekki orði af því sem hann segir, hann getur ekki sagt satt og bara öskrað, ég hef ort til hans ljóð og tileinkað honum bækur, hjálpað honum í krabbameinsmeðferð, sent hann í ofbeldismeðferð, á karla-alanonfundi en hann hefur ekkert gert fyrir mig.

29 nóvember 2012

Eyðilegging tildæmis

við.... fl..úmið.

Skilnaður eða dauði

Pabbi hennar Ellu Stínu hafði eyðilagt hana í lifanda lífi og hélt því áfram eftir dauðann, þannig var það líka við skilnaðinn, .... svo nú er hopp hopp og hí.

Hugdettan

Ég man ekki hvort það var þegar ég kom úr sundi eða hafði sett saman hjartað á tröppunum að mér datt í hug að banka niðri og allt yrði gott, en þá mundi ég eftir því að svoleiðis hefur það ekki gengið, það hefur alltaf komið höfnun í kjölfarið. Ég mundi eftir því í gær.

28 nóvember 2012

Ég er búin að uppgötva að ég þarf fylgd

Uppgötvun

Ég er búin að uppgötva að ég þarf hvatningu og stuðning.

27 nóvember 2012

Ó hvílík ósköp

Vitið þið afhverju Ella Stína fór á vonda staðinn.... tra la la la.....til að láta eyðileggja sig..... þessi undursamlega fullkomna mannvera.... tra la la la.... sorgarsaga.....

26 nóvember 2012

Skrímslið á efri hæðinni

Einn daginn þegar var opið út hjá Ellu Stínu og hún var að anda að sér fersku lofti heyrði hún að sagt var undir kjallaratröppunum, það var Skrímslið sem talaði: Varaðu þig svo á Skrímslinu, það býr á efri hæðinni.

Skrímslið læðist inn

Ella Stína var að lesa í bók þegar hún heyrði umgang á efri hæðinni, Skrímslið var eitthvað að dedúa, henni rann kalt vatn milli skinns og hörunds, hvernig hafði það komist inn án þess að hún heyrði að hurðinni var skellt.

Skóflurnar tvær og rauði veggurinn

Svo náin

Ellu Stínu var bent á að kveðja drauminn sem hún hafði átt með Skrímslið ef hún ætlaði að geta hætt að heimsækja það og verið alltaf á vondum stað. Þegar hún hugleiddi draumuinn sá hún fyrir sér Ellu Stínu og Skrímslið hlekkjuð saman auðvitað til eilífðar. Ella Stína glápti á drauminn... afhverju þessir hlekkir, jú hún hafði kynnst hlekkjum fyrr.

Skrímsla Jeppinn

Ella Stína bjó sem fyrr segir á efri hæðinni og heyrði grannt þegar Skrímslið hóstaði eða spilaði tónlist, opnaði hurðinni, hún var alltaf með varan á sér, og ætlaði að kíkja útum gluggann hvort Skrímslið væri á stígnum á leiðinni burt, en vildi ekki njósna svo hún kíkti ekki neitt en fór svo útum ruslið og kíkti útí götu og sá að jeppi skrímslins var farinn, þá varð Ella Stína, Skrímslið hafði ekki látið vita um ferðir sínar.

að gera annað

Þegar Ella Stína var búin að brjóta allt og bramla hjá Skrímslinu datt henni í hug að segja fyrirgefðu en eftir nokkrar fyrigefningarbeiðnir uppgötvaði hún að þetta fyrirgefðu var bara til að rúlla öllu uppá nýtt, en svo endaði það með því að hún fékk leið á þessum leik. Og fór að gera annað.

Lyklaborðið

Svo flutti Ella Stína en það dugði ekki til en þess saga klárast seinna, Skrímslið er komið í lyklaborðið.

Fluttur út

Hann er fluttur út. Guði sé lof, það er ekkert pláss fyrir hann hér í herberginu. Herberginu!? Já, þetta er svo lítið herbergi og þessi eini stóll og dagatalið, ekki einu sinni gluggi, ég er fegin að hann er fluttur. Hann bjó í allri íbúðinni. Hvaða íbúð? Íbúðinni þinni. Ég á enga íbúð. Ég er margbúin að segja þér að þú átt íbúð í gömlu húsi vestur í bæ og þið bjugguð þar, stundum sat hann í stólnum og þú lást í sófanum og þið horfðuð á sjónvarpið. Þetta hlýtur að hafa verið einhver draumur.

Rauk niður

Einu sinni þegar Ella Stína hafði stillt sig lengi um að heimsækja Skrímslið í kjallaranum og var ýmist í sundi eða heima að teikna eða kíkja á barnabörnin þá heyrði hún rödd sem sagði þarftu ekki að fara kíkja á skrímslið. á fannst Ellu Stínu einsog Skrímslið væri inní sér og kannski væri hún Skrímslið svo tilað koma í veg fyrir allan misskilning þá rauk hún niður.

Heima að teikna

Nú skulum við rifja aðeins upp, sagði röddin. Ókei, sagði Ella Stína. Þetta skrímsli er aumingi. Nú. Manstu þegar það týndi vettlingunum þínum. Jú. Og manstu þegar það hristi jólatréð. Já. Og þegar það neitaði að setja skilti á hurðina að þið byggjuð saman. Það man ég, sagði Ella Stína. Þá skaltu fara strax niður og banka hjá því. Það ansar aldrei. Sparkaðu þá í hurðina. Það gæti orðið reitt. Þá hleypurðu burtu. Má ég ekki bara vera heima að teikna.

Ella Stína og Skrímslið

Einu sinni sem oftar fór Ella Stína í kjallarann og kom marin og blá til baka, og þá loksins loksins loksins eignaðist hún vin, það var þröstur í reynitrénu sem blístraði á hana og spurði: Hver er leiðin í kjallarann? Leiðin? hváði Ella Stína. Já hver er leiðin? Það er leiðinn, ansaði Ella Stína.

Skrítin saga

Þegar Ellu Stínu leiddist heimsótti hún Skrímslið í kjallaranum, það reyndist hættuspil. Ella Stína kramdist alltaf stafs og hurðar því Skrímslið vildi engar heimsóknir en Ella Stína hélt að ef hún sýndi Skrímslinu áhuga myndi það breytast í stóran mjúkan bangsa einsog hún hafði séð í auglýsingum en hafði ekki efni á því foreldrar hennar voru dánir eða það minnti hana, en hvað um það, svo var Ella Stína kramin og blá og hefði þess vegna átt að missa áhugann á heimsækja Skrímslið, en það var nú öðru nær, leiðinn óx og óx og hún bankaði hjá Skrímslinu og þegar það opnaði ekki sparkaði hún í hurðina og ekki opnaði það heldur svo hún sparkaði í rúðuna og langaði mest tilað senda stein í gegnum rúðuna, henni leiddist svo mikið.

23 nóvember 2012

Hver hefur sagt mér það?

Ég sit hér og langar að hvæsa öskra brjóta í einu orði sagt eyðileggja af því ég á ekki skilið að lifa og hver já hver hefur sagt mér það, ....

ástand mála

Ég er búin að fara í Kvennaathvarfið í fimm daga og á Geðdeild í aðra fimm og á meðan var ofbeldismaðurinn að innrétta íbúð í kjallaranum á húsinu mínu og keypti hvert húsgagnið af fætur öðru, í gærkvöldi fór ég tilað róa hann af því hann öskraði einsog dýr í símann og gat ekki hætt, strauk honum um hryggsúluna og setti smá eitur í hvern lið.

20 nóvember 2012

æðiskast

eg tók eitt æðiskast í viðbót, ég ætti kannski að halda skrá yfir þessi æðisköst einsog áföllin í lífinu,.... en núna eru rauðar rósir í kjallaranum, eða þeas. rósablöð svo falleg og rauða skálin liggur brotin með klakasteininum fyrir utan gluggann hans,...

09 nóvember 2012

skrípaleikur

hér er allt í steik eða skyldi eg segja allt í leik og dásamlegt, laus við kallinn, jibbí og fer til berlínar, en ég er búin að vera í kvennaathvarfinu og þar er núna allt fullt svo ég er heima hjá mér og það er líka fullt á geðdeildinni og mig dreymdi fullt í nótt, tvo menn að strjúka hárið á mér aftan frá, einn ógeðslegan dökkhærðan strák í kjallaranum að wsegja ég væri mella, ég að keyra til bolungarvíkur með ungan mann, fremur slánalegan, saknaði aðeins hans í morgunsdárið, hasnn er fluttur nipur, farinn niður, skrípaleikur, skrípaleikur.

30 október 2012

Fæðingarhálfviti

Hann segir að ég sé padda og naðra og fæðingarhálfviti, snobbuð, illa að mér, illkvittin, vondur bílstjóri, helli uppá vont kaffi, en aðallega er ég brjálæðingur, eða svo segir hann, brjálæðingur.

24 október 2012

þrjú æðisköst

tekin í gær á mínum edrúafmælisdegi...ekki búin að jafna mig á öllu þessu rugli.

18 október 2012

franskur bakari sagði:

Deig er einsog kona, ef þú talar of hátt til hennar verður hún gröm og reið.

Ímyndað samtal á októberkvöldi

eg hélt þér líkaði ekki við matreiðsluþætti hvað meinarðu. nú þú talar þannig að það sé allt fullt af matreiðsluþáttum og þú þolir það ekki. hvað má é ekki horfa á þáttinn. jú jú. en hvað horfðu bara á hann. má ég það endilega þögn þú hefur bara miklu meiri áhuga á því sem þessi matreiðslukona er að elda heldur en á ljóðunum mínum.

Litla barnið

Bráðum kemur litla barnið hjá Ingunni og Garpi, og auðvitað Emblu, það verður spennandi að sjá hana og breytast í mjúkt lífsundur þegar ég sé lítil börn og þessvegna þessa frænku mína einsog Afi Kristjón sagði. Mér finnst endilega að hún verði dökkhærð og vá hvað ég hlskka til að sjá hana.

Skrítin spurning

ég tók æðiskast í gær og eina sem maðurinn sagði í morgun var: áttu kaffi!!!???

sloæto' er lp,o' skiltið meira af því

skiltið er komið og komið á hurðina, það er þar núna og ein skrúfa sprakk, skyldi það vera fyrirboði og ég sem var farin að skrifa söguna, skiltið sem aldrei var sett á hurðina, og nú óskar farinn að tala við sjónvarpið.

05 október 2012

Við

ÞAð er rosalegt mál að panta skilti, velja skilti, og ef ég hefði verið róleg hvað hefði þá gerst, ef ég hefði sagt feimnislega, við ætlum að fá skilti...

Ljósaskilti

Meðan ég var að athuga með lögun skiltis og leturgerð var hann að athuga með ljósaperur, hann vildi kannski hafa þetta ljósaskilti.

Í skiltabúðinni

Hann sagði áðuren við fórum inní búðina sem selur skilti, svo skaltu láta einsog þú hefur alltaf látið í þessari búð eða einsog þú hefur sagt mér og þá kom ég með hann að afgreiðsluborðinu og sagðist vera búin að finna maninn sem ég vildi búa með og afgreiðslumaðurinn spurði drekkur hann og ég sagði ekki dropa.

Skilti á hurðina

Í gær pöntuðum við skilti á hurðina, á meðan ég og afgreiðslumaðurinn vorum að pæla í lögun og leturgerð var hann að athuga með ljósaperur.

Útum gluggann

Þegar ég loka að mér bankar hann á hurðina og býður mér kaffi. Þegar ég hef allt opið horfir hann út um guggann.

03 október 2012

Helvíti

Konan í blómabúðinni segir mér að hjónaband sé einsog Helvíti og himnaríki og allt þar á milli, ég anda léttar en svo langar mig að snúa við og spyrja, en ef helvíti tekur yfirhöndina hvað þá?

Loka hurðinni

eg get farið að anda þegar ég loka hurðinni.

Sambúð

Ég þríf blóðið af veggnum fyrir hann. Og hann setur í nýja rúðu fyrir mig.

02 október 2012

Hugboðið

Hugboðið var með verra móti, það kom óboðið og lagði heiminn í rúst, eitt hugboð sem spratt af innsæi konu sem hún gat ekki skrifað og allt kom ruglað og hana langaði svo tilað segja sigri hrósandi, ég vissi það, ég vissi það.

Stæðið

ÞAð er búið að standa autt stæðið hér í götunni í mörg ár, fatlað stæði já í svona tíu ár eða lengur, það leggur enginn í það þrátt fyrir að það sé stundum þröng á þingi hér í götunni. Mér datt alltí einu í hug að kannski myndi ég sjálf enda í þessu stæði ef dramatíkin gengur eftir.

Koddinn

Ég hitti konu í Rúmfatalagernum og henni tókst á fimm mínútum að segja mér að ég væri nísk og snobbuð. Þetta má teljast nokkurt afrek. En þess má geta að ég var að kaupa kodda.

Konan í Blómabúðinni

Konan í blómabúðinni sagði mér að hjónabandið spannaði allt sviðið, frá Himnaríki til Helvítis... ég held ég fari oftar að kaupa blóm.

26 september 2012

Orðin

Lífið er dásamlegt, þakklæti er gott, ástin er alvöru, þakklæti er gott, lætur mér líða vel að þakka fyrir, nú er skuggsýnt, dreymdi Óskar var að fara heimsækja pabba í stórt hús í Hlíðunum, og dreymdi Gíslína var með tvíburastelpur og dreymdi Friðgeir var eitthvað að hjálpa mér. Lífið er dásamlegt, ég er syfjuð, ástin er alvara, þakklæti er gott, hvíld er góð.

Sofandi

Skilaði inn umsókn, vann í handriti, var glö-ö-ö'ððððððð glöð. Já, og fékk skrítna tilfinningu um slagbrand og járnhurð, borðaði sardínur, egg, rófurog kartöflur, fór í sturtu, já gaf kettinum, hvað meira, eitthvað, sofnaði yfir sjónvarpinu, sit núna í sófanum, Óskar er sofandi.

20 september 2012

Hvenær varð ég svona hrædd?

Kannski af því ég var alltaf ein....

Ég er hrædd við allt svo ég valdi mér mann sem er ekki hræddur við neitt nema mig

Ég er hrædd við allt, hrædd við tækin í líkamsræktinni, hrædd við að bíll keyri aftaná þegar Jökull er með Lillý í vagninum, að hundarir bíti hana, að innbrotsþjófar steli öllu af mér, að ég fái krabbamein, að einhver perri ráðist á ömmustelpurnar, að mér takist ekki að losa mig við kílóin átta, að það kvikni í húsinu, að mér takist ekki að taka ákvörðun um geðhvarfabókina, að kærastinn minn hætti að elska mig, hrædd við að verða fyrir eldingu, að Lillý og Embla klemmi á sér fingurna, að Kristjón verði fyrir árekstri á Hellisheiðinni, að ég fari útaf ef ég keyri útúr bænum, að ég klessi á bíl sem kemur á móti mér, að það verði tekinn af mér vinstri fóturinn útaf hásinabólgu, að mamma lendi í slysi í Íran, að eitthvað komi fyrir Illuga bróður minn, að ég verði sköllótt, að ég verði gömul, að ég muni ekki klára leikritin mín, að ég læri aldrei að naglalakka mig, að geðhvörfin mín þróist yfir í geðklofa, að ég hendi steini í kærastann, að það standi í mér, að ég verði alltaf þyrst, að ég fái heilablóðfall, að ég renni til á sundlaugargólfinu, að flugvél farist sem ég fer uppí, að ég detti í Gullfoss, að ég detti niður stigann heima hjá mér, - og af því ég er hrædd við allt þá valdi ég mér mann sem er ekki hræddur við neitt, - nema mig.

19 september 2012

Þvílík sól og hafið spegill

ótrúleg sól, kyrrð og fegurð, var kannski að hugsa um að fara með borð og stól niðrað bryggju og borða kleinu og fá mér kaffi.

18 september 2012

Afbrýðissemin: Kemur svo hratt og verður svo stór

Umsátrið um Elísabetu

Sextán þráhyggjur eða fleira hafa nú hafið umsátur um Elísabetu og hafa reyndar gert það lengi. Hvað kemst hún af lengi án matar, drykkjar, útiveru, ástar, kærleika, öryggis, aga, trúar, skemmtunar, vina, fjölskyldu og fjalla!!!?

17 september 2012

17.september 1979

Þennan dag fyrir hvað mörgum árum nenni ekki að reikna fór ég inná Klepp í fylgd heiðurslífvarðar sem aldrei hefur yfirgefið mig síðan og heldur ekki herbergið mitt, fékk þó á tilfinninguna í gær að ég væri komin útúr herberginu.

16 september 2012

Lillý dansar

Lillý hélt uppá afmælið sitt í dag og bauð þrjátíu manns eða þar um bil, þetta var yndislegt og hún fékk fullt af fallegum gjöfum og dillaði sér eftir tónlist, það verður gaman að sjá hana dansa.

15 september 2012

Næstum sofnuð

Fór á fótboltaleik með Lillý og fjölsk. á Mokka með Laufey og fjölsky. horfði á Merlín og var næstum sofnuð.

14 september 2012

Var það í gær?

Er hvít með blá augu, búin að mála tæplga 80 pöddur, fara í sturtu, ræktina, búa um rúmið, setja á mig body lotion, hlusta á útvarpið, vaska upp eða var það í gær?

13 september 2012

Draumur

Svaf í tíu tíma, dreymdi mikið, dreymdi pabba, hann var lifandi og ég man ekki meir, hvað hann var að gera, það kemur kannski þegar líður tekur á daginn, Embla er á leiðinni og ætlar að vera hjá ömmu sinni, ég er búin að mála 65 pöddur og fimm eða sjö í farvatninu, ég er alltaf að fara að vinna einsog Pödduleikritið eða Geðhvarfahandritið svo ég hafi eitthvað í ÞETTA að gera, en ég held ég hefði gott af því að taka smá frí, mála pöddur og gera undarleg ljóð eða skrá sögur, jafnvel drauma, það rignir og rignir og allt er orðið fullt hér á tröppunum, hvíta blómið er i nni og krakkarnir útá skólavelli skrækja óskaplega, og fréttirnar í útvarpinu, ein kona í gær sagði ég væri SÖNN MANNESKJA, og ég hlakka tilað fara í ræktina á morgun, kannski fer e´g í sund í kvöld, Vera Illugadóttir á afmæli í dag, og bílarnir þjóta hjá, ég ætla að fá mér te, og hafa það huggulegt með Veru, og ekki hugsa um ÞETTA, heldur bara hafa það næs og næs og skæs og alltaf smá mígreni að reyna að troða sér, í sumar var gott pöddusumar, og ætla aðeins að mála í viðbót og hvað skyldi pabbi hafa verið að gera í draumnum.

12 september 2012

Veikindi ekki einkamál

Amma Þóra hefði orðið hundrað og ellefu ára í dag, ég fór í ræktina, bætti við fimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm mínútum á brettinu og gerði sjálf aLLSKONAR æfingar, nú ætla ég hætta fyrir framan tölvuna og bara ræktast, svo hitti ég Andrés sem sagði það þyrfti að vanda sig rosalega mikið við geðhvarfabók og láta alla lesa, veikindi væri einkamál hvers og eins.

11 september 2012

Afmæli Lillý Elísabet

Fór í afmæli til Lillý Elísabet og borðaði gómsætt læri sem Jökull eldaði með þvílíkri sósu að önnur eins finnst varla. Lillý var þarna á fullu og stoppaði ekki allan tímann, hún fékk bíl frá afa sínum og ömmu í móðurætt og Ólíver frændi hennar kom líka í afmæli, hún faðmaði hann og hann hana, útsýnið var stórfenglegt, Jökull og Kristín svo ánægð með sína stelpu og hundana.

10 september 2012

Símtal

í dag var óveður, soldið flott, ég steikti fiskbúðing og lá í sófanum, svo skeði ýmislegt fleira, ég fór í ræktina, kona kom og ég fékk símtal frá Húsavík.

09 september 2012

Lillý Elísabet

kom og dreif ömmu sína á fætur um ellefuleytið, var þá búin að liggja í rúmið og hugsa um að einhver ætti að hugsa um hana og uppgötaði að Óskar hugsar oft um hana en hún ætti kannski að fara í Perluna og kaupa hárnæringu og drömmmmmm, já já já, og svo núna hefur þunglyndið komið og sagt, þú ert búin að gera nóg í lífinu, er þetta kannski persóna í leikriti?

08 september 2012

Fullkomið matarboð

Lillý Elísabet sat við borðið í fyrsta sinn og Embla Karen fyrir endann, allir svo prúðir stilltir og mikið talandi saman, flaumurinn, straumurinn, lærið og hnífurinn, allir svo kátir og yndislegir, lofandi lærið og Lillý setti allt niðrá gólf en sumt uppí sig og Embla sagði lærið væri gott og svo settust allir í stofuna, fullkomið.

07 september 2012

Matarboð

Garpur Ingunn og Embla, Jökull Kristín og Lillý Elísabet koma í læri í kvöld, það verður yndislegt, svo langt síðan síðast,... allttaf svo töfrandi þegar glamrar í hnífapörunum.

Frelsarinn

Fór í jarðarför G. Páls í gær, hver var hann, jarðargyðjan Gæja, guðirnir breyttu sér hér í gamla daga, en ég ætlaði varla að langa í jarðarförina, það tekur á, þetta var sorglegt en líka fyrir Ísland, svo uppgötvaði ég að hann hafði nú gert svo margt gott, einsog Anna, allir hafa gert svo gott, en krabbamein er ekki gott, é er með verk í hausnum og langar í kjol í ræktina, vaknaði á tveggja tíma fresti, næstu nótt tek ég svefntöflur, og sef einsog engill, einhver Hörður bankaði uppá hér í nott og bað um vatn, kannski þetta hafi verið frelsarinn.

06 september 2012

í kirkjunni í gær

vakna ekki upp í eins miklu þunglyndi og áður, er að fara í líkamsrækt, vantar nýtt lyklaborð og tövluna mína, uss, haustveður úti, drakk orkudrykk og banana í morgunmat, kaffi og lýsi, hvar eru legghlífarnar mínar, lífið er dásamlegt, dásamlegt, alltaf soldið hrædd við að deyja en aðallega á morgnana, en lífið er dásamlegt og ég fékk vitrun í kirkjunni í gær.

30 ágúst 2012

Morgunsamtal

var að vakna, tókst að sofa í sex tíma í beit, dreymdi eitthvað, við óskar í garði og svo kom einhver og þá fórum við, og svo dreymdi mig appelsínugult sófasett, frekar lítið og ég hlóð því öllu í bílinn, einhver hjón úr smáíbúðahverfinu létu mig hafa það, og svo dreymdi mig Laufey og börnin hennar en drukknaðan dreng þar á undan í Vesturbæjarlauginni. En best að fara á fætur og klæða sig og reyna taka ákvörðun hvort ég ætla að vinna að nýju bókinni minni í september eða ekki, og athugha gardínuefnið, rauða fallega með blómunum, kannski það er gott með svarta rimlarúminu. Og svo er búið að sópa stéttina bak við hús, og égþarf að prófa fleiri lyklaborð og er ekki með krabbamein í hálsinum,og át bjúgu í gær og hálsbrjóstsykur, og bráðum á Óskar afmæli, það verður gaman. Og kannski ætti ég að fara útúr bænum.

29 ágúst 2012

Haustsól

sól úti og ég er þyrst og það er pínu kalt, og ég var hjá Andrési sálfræðingi hinum snjalla og kom heim og þá sat Óskar á tröppunum með snúrur og ég er að fara í ræktina, tra la la la.... og svo tala við Hrafn.

25 ágúst 2012

Í september

las upphátt fyrir Óskar og það munaði öllu, fattaði hvað þurfti að laga í textanum, og svo er gott veður úti og ég er að fara þrífa skápana í kjallaranum og kannski er best að gefa út þetta geðveikihandrit ef vel vinnst í september.

24 ágúst 2012

Rauðu berin

ÉG vaknaði hálftíu og fékk mér gingeröl, lýsi, ómega, lyfin mín, kaffi og settist í sófann og sá rauðu berin á reynitrénu útum gluggann.

23 ágúst 2012

Hetjusögur

Fór í Bónus með kærastanum, hann setti þrjúhundruð læri ofaní körfuna, sem betur fer var það ekki læri af mér en við keyptum margt annað einsogh rauðar paprikur, engiferöl, svínakótelettur, og 2 blýanta og fórum svo á Grillhús Guðmundar, og svo voru sagðar hetjus-ögur.

22 ágúst 2012

Dagatalið

Hver ropi, þetta skyndilega holrúm sem myndast og endar með stunu, er minning, prump sem alltíeinu leysist úr læðingi og kemur úr iðrunum, þörmunum, andardrátturinn sem getur endað fyrirvaralaust, hefst og hnígur, andvarp sem hegðar sér einsog alda, eða stuna sem byrjar í munnholinu og endar í brjóstinu, hjartslátturinn sem ég veit ekki hvað endist lengi, hraður, hægur, hver hreyfing, augnlokin sem lyftast, þegar teygt er úr sér, eða þegar þarf að rembast, snýta sér, hósta, eða maður fær eymsli og gefur frá sér seigar langar stunur, eða stunur sem maður kæfir, grátur sem brýst fram og skekur axlirnar, brjóstholið bifast og gráturinn æðir uppí munnholið, tárin útúm augun og horið útum nefið, snöktið, hljóðlátt snökt um nótt sem enginn heyrir en merkir endalok tilverunnar, að tíminn er afmarkaður, að þetta snökt er merki um líkama sem einn daginn á eftir að síga ofaní moldina og verða eitt með moldinni, líkami sem hættir að hreyfa sig, dansa, snýta sér, hósta, - og veinið, skerandi vein sem brýst einsog hnífur úr iðrum líkamans, og klýfur höfuðið í tvennt, hausverkurinn, magapínan, harðlífið, vöðvabólgan, verkirnir, og svitinn, svitinn maður minn, svitinn sem sprettur fram, úrgangur úr líkamanum, eitthvað er farið úr honum og kemur aldrei aftur, svitinn, klístraður, ofurfínn, perlar, smjattið, augun uppglennt, eyrun spennt, og sumstaðar er líkaminn mjúkur, annarstaðar harður, liðirnir, teygjanleikinn, takmarkanirnar, svo koma hrukkur í líkamann, varirnar ekki lengur þrýstnar, vöðvarnir slapa, liðirnir stirðna, öll þessi merki sem telja tímann, telja tímann, búta hann niður, minna á hann, og brosið, hláturinn, flissið, hnussið, hummið, þetta er gjörsamlega óviðráðanlegur heimur.

Á morgun

Ég fer ekki í sund eða göngutúr, að vísu fór ég í göngutúr í gær en sundferðin endaði með ósköpum og leiðindum við eldhúsborðið, og víðar í íbúðinni, ég er að hugsa um að vakna ekki svona snemma á morgun.

Enginn veit

Það er aftur byrjað og enginn veit upptök þess.

20 ágúst 2012

Paddan

Paddan var frumsýnd í húsinu á Framnesvegi klukkan átta um kvöld, fullt hús og meir en það, fólk tróð sér allstaðar, allstaðar, og paddan skreið um í hjörtum fólks á eftir svo núna líður henni betur.

17 ágúst 2012

Það væri gaman

Fór uppá slysó í nótt á jeppanum, var með púls einsog unglingur og blóðþrýsting sömuleiðis, alveg rakið var með hjartalínurit, sá mynstrið, ég er með hjarta og alltí lagi, og leikkonan sagði ég er byrjuð að finna fyrir henni, eymd, sorg og jafnvel dauði en undanfarna viku höfum við verið að lesa pödduna sem verður frumsýnd í eldhúsinu á morgun gaman gaman þær eru svvo frábærar og ég get skrifað um frelsi, frelsið er yndislegt og ég hlkakka til að sjá gestina og ég hringdi í þorlák í nótt og heyrði hláturin í kærastanum, svona í takt við öldugjálfur og nú er best að fara raða stólum. og fara í sund ef ég kemst, það væri gaman.

15 ágúst 2012

Eitthvað alveg nýtt

fór á pósthúsið og náði í pakka frá Unu, mínar eigin bækur, talaði við konuna á póst6húsinu, hana Eddu sem gaf mér einu sinni vatn, talaði við Þröst á leiðinni uppá Landakotshæð og hélt ég væri að deyja úr áreynslu, Óskar kom í land, talaði við Vilnborgu á Hótel Borg sem ráðlagði me´r að leika í eldhúsinu mínu, mínu eigin eldhúsi, búin að vera í þunglyndi því ég ætlaði að hætta að éta fyrir einhvern annan, svona er lífið og ég væri kraftaverk ef ég kæmist í sund, fann fyrir smá stressi í dag en fékk að fara um borð í Þorlák, fallgeur bátur og gaman að koma um borð, sendi Hrafni handritið, kannski kemst ég í sund, kannski kemst ég í sund, ég að vera til fyrir mig.... það er eitthvað alveg nýtt....ég elska mig og lífið.

12 ágúst 2012

9 skref

Lillý Elísabet tók níu skref í gær á ellefu mánaða afmælisdegi sínum, en ég fór í sund í rigningu og synti fimmhundruð metra, fór í pizzu til Garps, Ingunnar og Emblu, það er gott að hafa sýnt einhverjum ást, þá fær maður ást á móti.

10 ágúst 2012

Aftur

Það var rigning en ég málaði pöddur og grunnaði og gekk útí rigninguna, hitaði fiskibollur og sauð kartöflur og talaði við Óskar, langar að tala aftur við hann.

Það svaraði ekki

Fannst ég vera deyja í alla nótt, kalt í hjartanu, drakk svo mikið kalt vatn, og svo kom kvíði, reyndi að hringja í Óskar í morgunsárið en það svaraði ekki.

09 ágúst 2012

Það er von á Lillý Elísabet

Hún ætlar að koma í heimsókn og vera hjá ömmu sinni, það er rigningarlegt, ég fór á fund, á Mokka með Laufeyju og keypti tvo kjóla, þá hringdi Jökull, það var gott að fara á fund og lýsa yfir vanmætti sínum, ég veit ekki hvert stefnir en Paddan er að skýrast.

08 ágúst 2012

Frumurnar

Þú ert aða reyna að ná í sársaukann, ég hélt ég væri að deyja,... myndi kannski deyja lifandi, ein fruma í dag önnur á morgun....

07 ágúst 2012

Burt

Vaknaði klukkan sjö og hefði getað farið á fætur en fór á fætur klukkan tíu og hitaði kaffi burstaði tenur og drakk mikið af vatni, fannst allt ofhlaðið í svefnherberginu og tók soldið niður, hugsaði um að fara burt, burt, burt.....

06 ágúst 2012

allt í kross

ég er viðkvæm og allt í kross inní mér

05 ágúst 2012

Nennum ekki að hlúa að ástinni

ég geri ekki annað en gagnrýna kærastann minn, hann vil að é hætti með honum, þessum látum við svona, við viljum þettta sé búið, haltu því til streitu en afhverju viljum við það, við nennum ekki að hlúa að ástinni.

Rústast allt.

alltaf þegar kærastinn kemur í land rústast allt.

02 ágúst 2012

hjartað

ég er með ótta í hjartanu.

01 ágúst 2012

ertu í vinnu við að hugsa um þetta mál

ég er alltaf að hugsa um ákveðið mál og í dag datt mér í hug, elísabet ertu í vinnu við þetta, ....

Eldavélin

ég er að bíða eftir að þvottavélin verði búin svo ég komist í sund, búin að mála 30 pöddur, kötturinn er fælinn, styggur, dreymdi draum þarsem bræðurnir rúnar, heimir, óskar sátu við eldhúsborðið en óskar varð fúll þegar ég spurði útí þetta með ísafjarðardæmið en eldavélin sýndi hið rétta. er ekki komin tími tilað fá vitið elísabet, góði guð raunveruleikaskynið fer í gegnum skilningarvitin. Og róna, ég meina ró ró ró.... andardráttinn.

31 júlí 2012

Fara til Grænlands

athuga það....

Þakka fyrir

Málaði pöddur í hádeginu. Sól. Reyni að komast í sund. Fer í sund. Kaupi eitthvað. Vaskaði upp. Reyndi að ná í Einar Örn, bjó ekki um rúmið, gott að hafa fimm mínútur þarsem ég gef guði daginn, fer yfir orkustöðvarnar, kaupi blóm. Þakka fyrir.

28 júlí 2012

Kalliði mig Væng

Amman: Embla hvernig finnst þér þegar þú ert kölluð prinsessa? Embla: Ekki skemmtilegt. Amman: En hvað má kalla þig? Embla: Kalliði mig Væng.

Kistan

Amman: Ef þú heitir Vængur hvað heiti ég þá? Embla: Kista, þú heitir Kista, hæ Kista. Amman: Hæ Vængur. Embla: Hæ. Amman: En hvað er í þessari kistu? Embla: Hún er lokuð. Amman: Lokuð!? Embla: Hún er læst! Amman: Og getur enginn opnað hana? Embla: Nei, enginn, nema þú. Amman: Ég!? Embla: Já, opnaðu lófana. Amman: Opna lófana. Embla: Opnaðu svo mallakútinn.