01 september 2009

Í höfðinu

Svo tók ég allt
af honum
og setti það í kistur.

Það var nóg
að hafa hann í höfðinu.

Þar gat ég alltaf
stjórnað honum

bara þessi nagandi ótti
að höfuðið klikkaði
einn daginn.

2 ummæli:

afsprengill.bloggar.is sagði...

Jóna Hansen kenndi mér að setja í kistur í kollinum
í kistunum máttum við innrétta eins og við vildum og hafa skúffur og skápa.
Skúffa númer 4 var mikilvægust hjá mér, því þar setti ég allt sem ég vildi ekki gleyma.
Nema qhvað að ég klikkaði aðeins á þessu hjá henni og í staðin fyrir að setja dönskuglósur og annað þarft stuff í skúffuna setti ég ....karlmenn.

Lísbet

Nafnlaus sagði...

Þetta er ljóð Lísbet, ég er enn að hugsa hvað ég segi um spurninguna þína, kk. Elísabet