26 apríl 2008

Garpur og Jökull eiga afmæli í dag

Til hamingju hamingju hamingju út og suður. Já ég fór í afmælisveislu og hringdi afmælissímtal, þetta er svo merkilegur dagur, keypti mér blómvönd, appelsínugular rósir sem er tákn fyrir lífskraftinn sem synir mínir hafa gefið mér enda fékk ég appelsín hjá Garpi og þegar ég hringdi í Jökul sagðist hann hafa verið að vona ég hefði gleymt deginum. Meira appelsín.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

til hamingju með daginn ELÍSABET!!!
Ég trúi því að fæðingardagur barns sé ekki síður uppáhaldsefni fyri móður.
Sting upp á að þú trítir þig með extra virðingu og tillitssemi í dag, það er ekkert slor að gjóta tvöfalt!
hamigjuóskir til ykkar allra
Lísbet (sem gefur sér líka pakka á afmælisdegi barna sinna)

Nafnlaus sagði...

ég keypti mér blómvönd, appelsínugular rósir sem tákna lífskraftinn sem þeir hafa gefið mér.

Best að halda áfram með extra virðinguna í dag.

Elísabet

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn Elísabet.

Kveðja, Herdís Pála.