14 apríl 2008

Ömmutvíburastelpurnar eiga afmæli!!!!

Jóhanna og Alexía eiga afmæli í dag, þær eru ellefu ára, hvorki meira né minna, þessar fallegu fögru dásemdardísir, prelluprinuprakkarar, orkubúnt, gáfnaljós, heimspekifiðrildi, teiknarar, skáld, söngvarar og undur heimsins. Æ, hvað ég vildi ég væri í afmælinu þeirra. En ég kem bara næst! Ég fór einusinni til Spánar í afmælið þeirra, þá urðu þær átta ára og voru í hvítum alheimskjólum. Fallegu systur, til hamingju hamingju, Elísabet amma knús knús knús.

2 ummæli:

Hringbrautin sagði...

Til hamingju með tvíburaömmustelpurnar. Þú ert ekkert smá rík. :)

Meiri sykur - vonandi fljótlega!

Nafnlaus sagði...

Sykurinn kveikir skáldskapinn enda lifir heilinn á sykri. Ég skil ekki fólk sem er á móti sykri, ég er ekki á móti svoleiðis fólki, ég hlusta á alla og er opin manneskja, og já þessi yndislegu barnabörn, ég heyri í þeim á morgun, jammm og jamm.