31 desember 2013

Fór til Vesturheims

Einu sinni var maður sem fór til Vesturheims, áðuren hann fór á skip þvoði hann sokkana sína og hengdi þá til þerris yfir arineldinum. Garpur sonur minn fór til Vesturheims í fyrradag og skildi eftir sig klippta Brasilíufara sem voru frumsýndir í sjónvarpinu í gær, já menn skilja ýmislegt eftir sig þegar þeir fara til Vesturheims og þess má geta sat ég ellefu ára gömul inní bókaherbergi hjá afa og ömmu og las hvert ættfræðiritið á fætur öðru og þegar stóð aftanvið nafn einhvers: Fór til Vesturheims.... hríslaðist um mig örlagahrollur af lúxusgerð.

Engin ummæli: