08 ágúst 2008

Opinberun...trúlofun!!!

Svo fallegt, rómantískt og hátíðlegt...

Garpur og Ingunn hafa opinberað trúlofun sína. Það gerðu þau eitt júlíkvöld í Aðalvík við ysta haf þarsem hvönnin og bláberjalyngið hefja sig til himins, sporin mjúk í sandinum, silungar vaka í ljóðrænni þrá og friðurinn ríkir, og hamingjan er ekki gestur... heldur gestgjafinn sjálfur, - þar settu þau upp hringana.

TIL HAMINGJU INGUNN OG GARPUR.

ást, gleði og allur sjóndeildarhringurinn.

6 ummæli:

Hringbrautin sagði...

Meiri dúllurnar. Til hamingju!

Nafnlaus sagði...

Já, takk sömuleiðis, þau eru aðalvíkurdúllur...:)

Framnesvegurinn

Nafnlaus sagði...

Takk :o)

Nafnlaus sagði...

ó hó, ingunn kommentaraði, það er alltaf sérstök hátíðahöld þegar tengdadæturnar kommentera...

knús, tengdó

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með þessa hamingju.

Nafnlaus sagði...

gaa??

hver er gaa?

einhver góður í aa?

ó , ég er svo góð í að túlka...

ella stína túlkur

takk fyrir kommentið