19 mars 2008

Guð og kynlífið

Takk fyrir fjöðrina, ég fékk fjöður í verðlaun fyrir bestu kynlífslýsinguna í bókmenntum síðasta árs frá bókmenntaklúbbnum Krumma, ég er alltaf með fjöðrina núna þegar ég er að skrifa, eða bara fíla mig vel, stundum flýg ég á henni útum gluggann. Í ljósi þessara verðlauna og að hingað streyma sífellt konur og stúlkur í leit að Vængjahurð eða Lásasmið hef ég sett mér markmið, á næsta ári ætla ég að fá "guðsneistann" fyrir að skrifa um guð.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju kæra Elísabet. FLOTT!
Vera

Nafnlaus sagði...

Takk Vera, gaman að heyra frá þér, knús, Elísabet

Nafnlaus sagði...

Kynlíf og Guð. Ég man ekki eftir neinu sem toppar þetta tvennt, vilji maður njóta hins góða.
Til hamingju með fjöðrina.
Hlakka til að lesa Guðsbókina þína.
Laufey.

Nafnlaus sagði...

Takk, guðsbók, kannski læt ég hana heita Guðspjall Elísabetar, eða litla Bænabókin hennar Ellu Stínu,

takk fyrir kommentið Laufey, er þetta Laufey sem var með mér í skólanum, ???

Elísabet

Nafnlaus sagði...

Þetta var Laufey sem kom með blómið.

Nafnlaus sagði...

Ah, hér með heitir þú Laufey sem kom með blómið. Takk kærlega.

Elísabet og knús