15 september 2008

Ástin hennar Ellu Stínu

Ég veit aldrei hvar ég á að setja ástina mína, það er hvergi pláss fyrir hana og ég er orðin mjög syfjuð en get ekki farið að sofa fyrren ég hef fundið pláss fyrir hana.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég skal taka hana,

Amalía Kaufhausen

Nafnlaus sagði...

Heyrðu, bara láta þig vita, ég tók ástina þína og sultaði hana,

setti á krukkur

og merkti: Elísabetarást.

Amalía Kaufhausen

Nafnlaus sagði...

Ástarsultan er uppseld, við viljum meiri ást frá þér, geturðu ekki látið okkur hafa alla sem þú átt, við getum örugglega selt hana,

með vinsemd og virðingu,

Amalía zu Kaufhausen auf der abend