05 október 2012

Útum gluggann

Þegar ég loka að mér bankar hann á hurðina og býður mér kaffi. Þegar ég hef allt opið horfir hann út um guggann.

03 október 2012

Helvíti

Konan í blómabúðinni segir mér að hjónaband sé einsog Helvíti og himnaríki og allt þar á milli, ég anda léttar en svo langar mig að snúa við og spyrja, en ef helvíti tekur yfirhöndina hvað þá?

Loka hurðinni

eg get farið að anda þegar ég loka hurðinni.

Sambúð

Ég þríf blóðið af veggnum fyrir hann. Og hann setur í nýja rúðu fyrir mig.

02 október 2012

Hugboðið

Hugboðið var með verra móti, það kom óboðið og lagði heiminn í rúst, eitt hugboð sem spratt af innsæi konu sem hún gat ekki skrifað og allt kom ruglað og hana langaði svo tilað segja sigri hrósandi, ég vissi það, ég vissi það.

Stæðið

ÞAð er búið að standa autt stæðið hér í götunni í mörg ár, fatlað stæði já í svona tíu ár eða lengur, það leggur enginn í það þrátt fyrir að það sé stundum þröng á þingi hér í götunni. Mér datt alltí einu í hug að kannski myndi ég sjálf enda í þessu stæði ef dramatíkin gengur eftir.

Koddinn

Ég hitti konu í Rúmfatalagernum og henni tókst á fimm mínútum að segja mér að ég væri nísk og snobbuð. Þetta má teljast nokkurt afrek. En þess má geta að ég var að kaupa kodda.

Konan í Blómabúðinni

Konan í blómabúðinni sagði mér að hjónabandið spannaði allt sviðið, frá Himnaríki til Helvítis... ég held ég fari oftar að kaupa blóm.

26 september 2012

Orðin

Lífið er dásamlegt, þakklæti er gott, ástin er alvöru, þakklæti er gott, lætur mér líða vel að þakka fyrir, nú er skuggsýnt, dreymdi Óskar var að fara heimsækja pabba í stórt hús í Hlíðunum, og dreymdi Gíslína var með tvíburastelpur og dreymdi Friðgeir var eitthvað að hjálpa mér. Lífið er dásamlegt, ég er syfjuð, ástin er alvara, þakklæti er gott, hvíld er góð.

Sofandi

Skilaði inn umsókn, vann í handriti, var glö-ö-ö'ððððððð glöð. Já, og fékk skrítna tilfinningu um slagbrand og járnhurð, borðaði sardínur, egg, rófurog kartöflur, fór í sturtu, já gaf kettinum, hvað meira, eitthvað, sofnaði yfir sjónvarpinu, sit núna í sófanum, Óskar er sofandi.

20 september 2012

Hvenær varð ég svona hrædd?

Kannski af því ég var alltaf ein....

Ég er hrædd við allt svo ég valdi mér mann sem er ekki hræddur við neitt nema mig

Ég er hrædd við allt, hrædd við tækin í líkamsræktinni, hrædd við að bíll keyri aftaná þegar Jökull er með Lillý í vagninum, að hundarir bíti hana, að innbrotsþjófar steli öllu af mér, að ég fái krabbamein, að einhver perri ráðist á ömmustelpurnar, að mér takist ekki að losa mig við kílóin átta, að það kvikni í húsinu, að mér takist ekki að taka ákvörðun um geðhvarfabókina, að kærastinn minn hætti að elska mig, hrædd við að verða fyrir eldingu, að Lillý og Embla klemmi á sér fingurna, að Kristjón verði fyrir árekstri á Hellisheiðinni, að ég fari útaf ef ég keyri útúr bænum, að ég klessi á bíl sem kemur á móti mér, að það verði tekinn af mér vinstri fóturinn útaf hásinabólgu, að mamma lendi í slysi í Íran, að eitthvað komi fyrir Illuga bróður minn, að ég verði sköllótt, að ég verði gömul, að ég muni ekki klára leikritin mín, að ég læri aldrei að naglalakka mig, að geðhvörfin mín þróist yfir í geðklofa, að ég hendi steini í kærastann, að það standi í mér, að ég verði alltaf þyrst, að ég fái heilablóðfall, að ég renni til á sundlaugargólfinu, að flugvél farist sem ég fer uppí, að ég detti í Gullfoss, að ég detti niður stigann heima hjá mér, - og af því ég er hrædd við allt þá valdi ég mér mann sem er ekki hræddur við neitt, - nema mig.

19 september 2012

Þvílík sól og hafið spegill

ótrúleg sól, kyrrð og fegurð, var kannski að hugsa um að fara með borð og stól niðrað bryggju og borða kleinu og fá mér kaffi.

18 september 2012

Afbrýðissemin: Kemur svo hratt og verður svo stór

Umsátrið um Elísabetu

Sextán þráhyggjur eða fleira hafa nú hafið umsátur um Elísabetu og hafa reyndar gert það lengi. Hvað kemst hún af lengi án matar, drykkjar, útiveru, ástar, kærleika, öryggis, aga, trúar, skemmtunar, vina, fjölskyldu og fjalla!!!?

17 september 2012

17.september 1979

Þennan dag fyrir hvað mörgum árum nenni ekki að reikna fór ég inná Klepp í fylgd heiðurslífvarðar sem aldrei hefur yfirgefið mig síðan og heldur ekki herbergið mitt, fékk þó á tilfinninguna í gær að ég væri komin útúr herberginu.

16 september 2012

Lillý dansar

Lillý hélt uppá afmælið sitt í dag og bauð þrjátíu manns eða þar um bil, þetta var yndislegt og hún fékk fullt af fallegum gjöfum og dillaði sér eftir tónlist, það verður gaman að sjá hana dansa.

15 september 2012

Næstum sofnuð

Fór á fótboltaleik með Lillý og fjölsk. á Mokka með Laufey og fjölsky. horfði á Merlín og var næstum sofnuð.

14 september 2012

Var það í gær?

Er hvít með blá augu, búin að mála tæplga 80 pöddur, fara í sturtu, ræktina, búa um rúmið, setja á mig body lotion, hlusta á útvarpið, vaska upp eða var það í gær?

13 september 2012

Draumur

Svaf í tíu tíma, dreymdi mikið, dreymdi pabba, hann var lifandi og ég man ekki meir, hvað hann var að gera, það kemur kannski þegar líður tekur á daginn, Embla er á leiðinni og ætlar að vera hjá ömmu sinni, ég er búin að mála 65 pöddur og fimm eða sjö í farvatninu, ég er alltaf að fara að vinna einsog Pödduleikritið eða Geðhvarfahandritið svo ég hafi eitthvað í ÞETTA að gera, en ég held ég hefði gott af því að taka smá frí, mála pöddur og gera undarleg ljóð eða skrá sögur, jafnvel drauma, það rignir og rignir og allt er orðið fullt hér á tröppunum, hvíta blómið er i nni og krakkarnir útá skólavelli skrækja óskaplega, og fréttirnar í útvarpinu, ein kona í gær sagði ég væri SÖNN MANNESKJA, og ég hlakka tilað fara í ræktina á morgun, kannski fer e´g í sund í kvöld, Vera Illugadóttir á afmæli í dag, og bílarnir þjóta hjá, ég ætla að fá mér te, og hafa það huggulegt með Veru, og ekki hugsa um ÞETTA, heldur bara hafa það næs og næs og skæs og alltaf smá mígreni að reyna að troða sér, í sumar var gott pöddusumar, og ætla aðeins að mála í viðbót og hvað skyldi pabbi hafa verið að gera í draumnum.

12 september 2012

Veikindi ekki einkamál

Amma Þóra hefði orðið hundrað og ellefu ára í dag, ég fór í ræktina, bætti við fimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm mínútum á brettinu og gerði sjálf aLLSKONAR æfingar, nú ætla ég hætta fyrir framan tölvuna og bara ræktast, svo hitti ég Andrés sem sagði það þyrfti að vanda sig rosalega mikið við geðhvarfabók og láta alla lesa, veikindi væri einkamál hvers og eins.

11 september 2012

Afmæli Lillý Elísabet

Fór í afmæli til Lillý Elísabet og borðaði gómsætt læri sem Jökull eldaði með þvílíkri sósu að önnur eins finnst varla. Lillý var þarna á fullu og stoppaði ekki allan tímann, hún fékk bíl frá afa sínum og ömmu í móðurætt og Ólíver frændi hennar kom líka í afmæli, hún faðmaði hann og hann hana, útsýnið var stórfenglegt, Jökull og Kristín svo ánægð með sína stelpu og hundana.

10 september 2012

Símtal

í dag var óveður, soldið flott, ég steikti fiskbúðing og lá í sófanum, svo skeði ýmislegt fleira, ég fór í ræktina, kona kom og ég fékk símtal frá Húsavík.

09 september 2012

Lillý Elísabet

kom og dreif ömmu sína á fætur um ellefuleytið, var þá búin að liggja í rúmið og hugsa um að einhver ætti að hugsa um hana og uppgötaði að Óskar hugsar oft um hana en hún ætti kannski að fara í Perluna og kaupa hárnæringu og drömmmmmm, já já já, og svo núna hefur þunglyndið komið og sagt, þú ert búin að gera nóg í lífinu, er þetta kannski persóna í leikriti?

08 september 2012

Fullkomið matarboð

Lillý Elísabet sat við borðið í fyrsta sinn og Embla Karen fyrir endann, allir svo prúðir stilltir og mikið talandi saman, flaumurinn, straumurinn, lærið og hnífurinn, allir svo kátir og yndislegir, lofandi lærið og Lillý setti allt niðrá gólf en sumt uppí sig og Embla sagði lærið væri gott og svo settust allir í stofuna, fullkomið.

07 september 2012

Matarboð

Garpur Ingunn og Embla, Jökull Kristín og Lillý Elísabet koma í læri í kvöld, það verður yndislegt, svo langt síðan síðast,... allttaf svo töfrandi þegar glamrar í hnífapörunum.

Frelsarinn

Fór í jarðarför G. Páls í gær, hver var hann, jarðargyðjan Gæja, guðirnir breyttu sér hér í gamla daga, en ég ætlaði varla að langa í jarðarförina, það tekur á, þetta var sorglegt en líka fyrir Ísland, svo uppgötvaði ég að hann hafði nú gert svo margt gott, einsog Anna, allir hafa gert svo gott, en krabbamein er ekki gott, é er með verk í hausnum og langar í kjol í ræktina, vaknaði á tveggja tíma fresti, næstu nótt tek ég svefntöflur, og sef einsog engill, einhver Hörður bankaði uppá hér í nott og bað um vatn, kannski þetta hafi verið frelsarinn.

06 september 2012

í kirkjunni í gær

vakna ekki upp í eins miklu þunglyndi og áður, er að fara í líkamsrækt, vantar nýtt lyklaborð og tövluna mína, uss, haustveður úti, drakk orkudrykk og banana í morgunmat, kaffi og lýsi, hvar eru legghlífarnar mínar, lífið er dásamlegt, dásamlegt, alltaf soldið hrædd við að deyja en aðallega á morgnana, en lífið er dásamlegt og ég fékk vitrun í kirkjunni í gær.

30 ágúst 2012

Morgunsamtal

var að vakna, tókst að sofa í sex tíma í beit, dreymdi eitthvað, við óskar í garði og svo kom einhver og þá fórum við, og svo dreymdi mig appelsínugult sófasett, frekar lítið og ég hlóð því öllu í bílinn, einhver hjón úr smáíbúðahverfinu létu mig hafa það, og svo dreymdi mig Laufey og börnin hennar en drukknaðan dreng þar á undan í Vesturbæjarlauginni. En best að fara á fætur og klæða sig og reyna taka ákvörðun hvort ég ætla að vinna að nýju bókinni minni í september eða ekki, og athugha gardínuefnið, rauða fallega með blómunum, kannski það er gott með svarta rimlarúminu. Og svo er búið að sópa stéttina bak við hús, og égþarf að prófa fleiri lyklaborð og er ekki með krabbamein í hálsinum,og át bjúgu í gær og hálsbrjóstsykur, og bráðum á Óskar afmæli, það verður gaman. Og kannski ætti ég að fara útúr bænum.

29 ágúst 2012

Haustsól

sól úti og ég er þyrst og það er pínu kalt, og ég var hjá Andrési sálfræðingi hinum snjalla og kom heim og þá sat Óskar á tröppunum með snúrur og ég er að fara í ræktina, tra la la la.... og svo tala við Hrafn.

25 ágúst 2012

Í september

las upphátt fyrir Óskar og það munaði öllu, fattaði hvað þurfti að laga í textanum, og svo er gott veður úti og ég er að fara þrífa skápana í kjallaranum og kannski er best að gefa út þetta geðveikihandrit ef vel vinnst í september.

24 ágúst 2012

Rauðu berin

ÉG vaknaði hálftíu og fékk mér gingeröl, lýsi, ómega, lyfin mín, kaffi og settist í sófann og sá rauðu berin á reynitrénu útum gluggann.

23 ágúst 2012

Hetjusögur

Fór í Bónus með kærastanum, hann setti þrjúhundruð læri ofaní körfuna, sem betur fer var það ekki læri af mér en við keyptum margt annað einsogh rauðar paprikur, engiferöl, svínakótelettur, og 2 blýanta og fórum svo á Grillhús Guðmundar, og svo voru sagðar hetjus-ögur.

22 ágúst 2012

Dagatalið

Hver ropi, þetta skyndilega holrúm sem myndast og endar með stunu, er minning, prump sem alltíeinu leysist úr læðingi og kemur úr iðrunum, þörmunum, andardrátturinn sem getur endað fyrirvaralaust, hefst og hnígur, andvarp sem hegðar sér einsog alda, eða stuna sem byrjar í munnholinu og endar í brjóstinu, hjartslátturinn sem ég veit ekki hvað endist lengi, hraður, hægur, hver hreyfing, augnlokin sem lyftast, þegar teygt er úr sér, eða þegar þarf að rembast, snýta sér, hósta, eða maður fær eymsli og gefur frá sér seigar langar stunur, eða stunur sem maður kæfir, grátur sem brýst fram og skekur axlirnar, brjóstholið bifast og gráturinn æðir uppí munnholið, tárin útúm augun og horið útum nefið, snöktið, hljóðlátt snökt um nótt sem enginn heyrir en merkir endalok tilverunnar, að tíminn er afmarkaður, að þetta snökt er merki um líkama sem einn daginn á eftir að síga ofaní moldina og verða eitt með moldinni, líkami sem hættir að hreyfa sig, dansa, snýta sér, hósta, - og veinið, skerandi vein sem brýst einsog hnífur úr iðrum líkamans, og klýfur höfuðið í tvennt, hausverkurinn, magapínan, harðlífið, vöðvabólgan, verkirnir, og svitinn, svitinn maður minn, svitinn sem sprettur fram, úrgangur úr líkamanum, eitthvað er farið úr honum og kemur aldrei aftur, svitinn, klístraður, ofurfínn, perlar, smjattið, augun uppglennt, eyrun spennt, og sumstaðar er líkaminn mjúkur, annarstaðar harður, liðirnir, teygjanleikinn, takmarkanirnar, svo koma hrukkur í líkamann, varirnar ekki lengur þrýstnar, vöðvarnir slapa, liðirnir stirðna, öll þessi merki sem telja tímann, telja tímann, búta hann niður, minna á hann, og brosið, hláturinn, flissið, hnussið, hummið, þetta er gjörsamlega óviðráðanlegur heimur.

Á morgun

Ég fer ekki í sund eða göngutúr, að vísu fór ég í göngutúr í gær en sundferðin endaði með ósköpum og leiðindum við eldhúsborðið, og víðar í íbúðinni, ég er að hugsa um að vakna ekki svona snemma á morgun.

Enginn veit

Það er aftur byrjað og enginn veit upptök þess.

20 ágúst 2012

Paddan

Paddan var frumsýnd í húsinu á Framnesvegi klukkan átta um kvöld, fullt hús og meir en það, fólk tróð sér allstaðar, allstaðar, og paddan skreið um í hjörtum fólks á eftir svo núna líður henni betur.

17 ágúst 2012

Það væri gaman

Fór uppá slysó í nótt á jeppanum, var með púls einsog unglingur og blóðþrýsting sömuleiðis, alveg rakið var með hjartalínurit, sá mynstrið, ég er með hjarta og alltí lagi, og leikkonan sagði ég er byrjuð að finna fyrir henni, eymd, sorg og jafnvel dauði en undanfarna viku höfum við verið að lesa pödduna sem verður frumsýnd í eldhúsinu á morgun gaman gaman þær eru svvo frábærar og ég get skrifað um frelsi, frelsið er yndislegt og ég hlkakka til að sjá gestina og ég hringdi í þorlák í nótt og heyrði hláturin í kærastanum, svona í takt við öldugjálfur og nú er best að fara raða stólum. og fara í sund ef ég kemst, það væri gaman.

15 ágúst 2012

Eitthvað alveg nýtt

fór á pósthúsið og náði í pakka frá Unu, mínar eigin bækur, talaði við konuna á póst6húsinu, hana Eddu sem gaf mér einu sinni vatn, talaði við Þröst á leiðinni uppá Landakotshæð og hélt ég væri að deyja úr áreynslu, Óskar kom í land, talaði við Vilnborgu á Hótel Borg sem ráðlagði me´r að leika í eldhúsinu mínu, mínu eigin eldhúsi, búin að vera í þunglyndi því ég ætlaði að hætta að éta fyrir einhvern annan, svona er lífið og ég væri kraftaverk ef ég kæmist í sund, fann fyrir smá stressi í dag en fékk að fara um borð í Þorlák, fallgeur bátur og gaman að koma um borð, sendi Hrafni handritið, kannski kemst ég í sund, kannski kemst ég í sund, ég að vera til fyrir mig.... það er eitthvað alveg nýtt....ég elska mig og lífið.

12 ágúst 2012

9 skref

Lillý Elísabet tók níu skref í gær á ellefu mánaða afmælisdegi sínum, en ég fór í sund í rigningu og synti fimmhundruð metra, fór í pizzu til Garps, Ingunnar og Emblu, það er gott að hafa sýnt einhverjum ást, þá fær maður ást á móti.

10 ágúst 2012

Aftur

Það var rigning en ég málaði pöddur og grunnaði og gekk útí rigninguna, hitaði fiskibollur og sauð kartöflur og talaði við Óskar, langar að tala aftur við hann.

Það svaraði ekki

Fannst ég vera deyja í alla nótt, kalt í hjartanu, drakk svo mikið kalt vatn, og svo kom kvíði, reyndi að hringja í Óskar í morgunsárið en það svaraði ekki.

09 ágúst 2012

Það er von á Lillý Elísabet

Hún ætlar að koma í heimsókn og vera hjá ömmu sinni, það er rigningarlegt, ég fór á fund, á Mokka með Laufeyju og keypti tvo kjóla, þá hringdi Jökull, það var gott að fara á fund og lýsa yfir vanmætti sínum, ég veit ekki hvert stefnir en Paddan er að skýrast.

08 ágúst 2012

Frumurnar

Þú ert aða reyna að ná í sársaukann, ég hélt ég væri að deyja,... myndi kannski deyja lifandi, ein fruma í dag önnur á morgun....

07 ágúst 2012

Burt

Vaknaði klukkan sjö og hefði getað farið á fætur en fór á fætur klukkan tíu og hitaði kaffi burstaði tenur og drakk mikið af vatni, fannst allt ofhlaðið í svefnherberginu og tók soldið niður, hugsaði um að fara burt, burt, burt.....

06 ágúst 2012

allt í kross

ég er viðkvæm og allt í kross inní mér

05 ágúst 2012

Nennum ekki að hlúa að ástinni

ég geri ekki annað en gagnrýna kærastann minn, hann vil að é hætti með honum, þessum látum við svona, við viljum þettta sé búið, haltu því til streitu en afhverju viljum við það, við nennum ekki að hlúa að ástinni.

Rústast allt.

alltaf þegar kærastinn kemur í land rústast allt.

02 ágúst 2012

hjartað

ég er með ótta í hjartanu.

01 ágúst 2012

ertu í vinnu við að hugsa um þetta mál

ég er alltaf að hugsa um ákveðið mál og í dag datt mér í hug, elísabet ertu í vinnu við þetta, ....

Eldavélin

ég er að bíða eftir að þvottavélin verði búin svo ég komist í sund, búin að mála 30 pöddur, kötturinn er fælinn, styggur, dreymdi draum þarsem bræðurnir rúnar, heimir, óskar sátu við eldhúsborðið en óskar varð fúll þegar ég spurði útí þetta með ísafjarðardæmið en eldavélin sýndi hið rétta. er ekki komin tími tilað fá vitið elísabet, góði guð raunveruleikaskynið fer í gegnum skilningarvitin. Og róna, ég meina ró ró ró.... andardráttinn.

31 júlí 2012

Fara til Grænlands

athuga það....

Þakka fyrir

Málaði pöddur í hádeginu. Sól. Reyni að komast í sund. Fer í sund. Kaupi eitthvað. Vaskaði upp. Reyndi að ná í Einar Örn, bjó ekki um rúmið, gott að hafa fimm mínútur þarsem ég gef guði daginn, fer yfir orkustöðvarnar, kaupi blóm. Þakka fyrir.

28 júlí 2012

Kalliði mig Væng

Amman: Embla hvernig finnst þér þegar þú ert kölluð prinsessa? Embla: Ekki skemmtilegt. Amman: En hvað má kalla þig? Embla: Kalliði mig Væng.

Kistan

Amman: Ef þú heitir Vængur hvað heiti ég þá? Embla: Kista, þú heitir Kista, hæ Kista. Amman: Hæ Vængur. Embla: Hæ. Amman: En hvað er í þessari kistu? Embla: Hún er lokuð. Amman: Lokuð!? Embla: Hún er læst! Amman: Og getur enginn opnað hana? Embla: Nei, enginn, nema þú. Amman: Ég!? Embla: Já, opnaðu lófana. Amman: Opna lófana. Embla: Opnaðu svo mallakútinn.

27 júlí 2012

trú

ég ól upp börn og gaf þeim trú, einn daginn gefa þau mér þessa trú til baka.

Pikkið

klikkuð sól búin að raða hvítum steinum á handriðip og ryksuga og þetta er lélegt lyklaborð og klára ástarvinnufriðarherbergið og fá mér djús og lýsi og vítgamín og lítarex og ég elska pikkið

26 júlí 2012

Ég ?

ég er svo feit ég þoli ég það ekki, mér finnst vera einhver önnur en ég er svo feit svo ógeðslega feit bólghin ogh þrútin oj oj hvar er ég.

25 júlí 2012

Smá dagbók

Skrifaði þrjár sögur í gær, ...... eftir alanonfund,..... soldið stirð en uppgötvaði sérsstöðu mína,.....razorsharp short-stories, minn tebolli, það er ekkert víst ég eigi eftir að skrifa þessa 1000 bls. bók sem mig dreymir um, nema nottla ég ætti að skrifa........ BIG BOOK OF MADNESS,.... Og skemmta mér, kærastinn minn er búinn að segja .............................alvarlegur rithöfundur milljón sinnum síðan ég sagðis vera það, pæla í því!!!!!!! Jæja, þá afhverju er ekki hægt að gera bil, svaf og dreymdi mikið, nú er hádegi og ég nývöknuð, kannski kems ég í sund í dag, á eftir er fundur um Sýrland, bræður hans ÓSkars og mamma komin í kompaní, ....................... já, fékk mér lýsi, ómega, víTAMÍN, líþarex, kíkti aðeins á Þorlák en sá hann ekki, sit í hvítum kjól eða peysu, veit ekki hvort, er með GOTT KAFFI, ætla útbúa glerskápinn, .... og hvað fleira. hmmmmmmmmmmmmmmmmm..... ja ja ja...... big book of madness.... hvenær kemur kærastinn í land, ætli hann sé hættur að elska mig, fattaði eitt í gær, að það er ekki spurning um ég treysti honum, heldur hvort ég treysti mér, .... lífið er dásamlegt og það er sól að brjótast fram úr skýjum.

Soldið drasl

Í gær var ég að raða öllu og hengja myndir uppá vegg, é er að flilppa út á lyklborðinu mínu, fæ mér nýtt og prentara, en já uppgötvai ðí framhaldi af öllu raðinu að ég verð að hafa soldið drasl í vinnuherberginu mínu,...................... og hvít blöð flögrandi útum allt. Love. Elísabet

Soldið drasl

Í gær var ég að raða öllu og hengja myndir uppá vegg, é er að flilppa út á lyklborðinu mínu, fæ mér nýtt og prentara, en já uppgötvai ðí framhaldi af öllu raðinu að ég verð að hafa soldið drasl í vinnuherberginu mínu,...................... og hvít blöð flögrandi útum allt. Love. Elísabet

240.þús

Fékk bréf frá Tryggingasstofnun þeir ætla taKA AF MÉR 240. þús kall. Verði þeim að góðu litlu greynunum.

24 júlí 2012

Hunangsfiskifluga

sá soleiðis á tröppunum og það hvín í laufinu, sól.

23 júlí 2012

Til Rússladns?

Pabbi minn er gráhærður og galdraði mig gráhærða,.... ég er úlfur. Töfrakonan vill bara ást,ekki töfraást,en um leið og hún verður ástfangin koma helvi´tis töfrarnir, og hún stingur höfðinu í sandinn og töfrarnir bíta hana í rassinn, já hvert á ég að fara, til Írlands, New York, Rússlands kannski. Já.

ekki almennilega vöknuð

ég er smámsaman að fatta að kannski er þetta sagnaheimurinn, en tréð hreyfist fyrir utan gluggann minn, norðaustan, bjó til hillu lítilla hluta í gær, ér+g er ekki almennilega vöknuð.
Kom í gær og fer í dag.

21 júlí 2012

ÉG vaknaði

þótt ég væri pínulítið hrædd um að vakna ekki aftur og spurði guð eða bað áðuren e´g fór að sofa: Viltu leyfa mér að lifa. Takk, pass, amen.

20 júlí 2012

Langar í eitthvað....

Líkamsrækt og sund

Fór í líkamsrækt og sund, súpaði prótín drykk á eftir og kom við á Lindarbraut 10 og tók Ellu Stínu uppí, hún vildi fara skoða sæljónin með Óskari, við sættumst á húsdýragarðinn amk. svona í fljótu bragði séð, ætlaði að kaupa tösku handa mömmu en keypti uppþembulyf og hægðatregðulyf, setti sundbolinn til þerris útá tröppur og það er sól, Ella Stína vildi líka horfa í sólina, ég held ég teikni handa henni sæljón nei sól og leiki sæljón nema hún vilji gera það en Embla vildi heldur að ég segði sögu en hún og við fórum í bókabúðina og það var yndi að hafa hana svona lengi.

Embla kom í heimsókn

og við gengum útá Eiðistorg, ætluðum í fjöruna á leiðinni en hún var of stórgrýtt svo ég treysti mér með barnið, slysin gera ekki boð á undan sér, en það var einsog einhver hefði tekið til í fjörunni, kannski þessir fjórir mávar sem spígsporuðu þar um, og það var fjara semsagt, Embla á hlaupahjóli og ég með myndavélina, tek myndir af öllu núna, og við ræddum um það þegar við fórum síðast í fjöru, já hvenær var það nú síðast, spurði ég. Þegar ég gisti hjá þér, sagði hún. Já, sagði ég, var Óskar með? Nei, svaraði hún, Óskar var ekki kominn í heiminn. '

19 júlí 2012

Langamma

Hvar er járnið sem ég er gerð úr....!!!!? Langamamma!!!!!

Hvar er járnið?

sýnikennsla guðs

guð er að sýna mér hvernig ég varð geðveik, þetta er sýnikennsla guðs, hann vill að ég taki stjórnina í mínar hendur eftir að hafa gefist upp, ég er farin á bílnum,....

hey guð

hvernig vilt þú vera elísabet ? æ bara að skrifa og stundum í kjól eða passa prinsessurnar og fara í sund, berja hausnum við vegginn svo blæðir úr en það var í gamla daga og nú er fortíðin að koma aftur þjótandi merkilegt mjög merkilegt, guð er að sýna mér eitthvað, hey guð.

Eintóm leiðindi

ég ætlaði að bjóða kærastnum á Lauighar vatn en hann vildi frekar fara í bónus og þoriði ekki með mér á mnnamót því ég er svo klikkuð afbrgýðissöm og hvatvís og halló halló halló einmtóm leiðindi. Nú djás allirt hann hefur rétt fy rir sér.

17 júlí 2012

Jói

í dag var afmælisdagurinn hans Jóa, hann gróðursetti tré í garðinum mínum.

Minnsta málið

ég spurði leigubílstjórann hvort hann héldi í höndina á konunni sinni þegar þau færu í bíó og hvort hann væri því mótfallinn að hún héldi í höndina á honum. Minnsta málið, sagði bílstjórinn og svo fattaði ég að það var einsog hann væri að gera henni greiða. Geturðu gert mér greiða. Minnsta málið.

Leigubíl heim

Fórum í bió gær. Myndin var einsog venjulegu um það að dónaskapur og leiðindi lækni lömun, lífsleiða og svo leiðis. Nei ég er í fýlu, ég þurfti að taka leigubíl heim.

15 júlí 2012

innkaup á sunnudegi

fór í byko og keypti akrílliti og pensla, óskar keypti gólflista.

Glerskápurinn

Óskar er að gera við gluggann í kjallaranum, og er búinn að setja borðstofuborðið inní stærsta herbergið og snúa glerskápnum þannig að hann fyllir útí hornið, mér finnst það ekki passa.

Hundrað pöddur

Ég er að mála pöddur, búin að mála næstum tíu pöddur, en samt eru þær ekki tilbúnar, ég held ég hafi komist að þvi hvar paddan býr, loðin og svört með marga fætur, skrautlegt mynstur. Ég ætla mála hundrauð pöddur.

14 júlí 2012

Farin að brosa

Ég var farin að brosa,...

13 júlí 2012

Geðhjúkrunarkonan sagði

Orðið fyrir þungbærri reynslu sem veldur því að mig langar að eyða sjálfri mér.

Á snúrunni

Hengdi út hvítu blúnduskyrtuna, og tók inn svörtu peysuna sem er hneppt í miðju.

12 júlí 2012

Draumur í bílskúr á Reynimel

Mig dreymdi litla stelpu svona 4 til 7 ára í bílskúr á Reynimel, í rúmi og hún var að segja sögur en pissaði stöðugt á sig, bunan stóð niður úr rúminu á gólfið, og við hliðina á rúminu var perralegur maður í gömlum snjáðum jakkafötum, ég kom þarna og spurði hann til nafns en hann vildi ekki segja hvað hann hét. En það var eitthvað skrifstofulegt við hann.

11 júlí 2012

Geðveikiheimurinn

Stjórna manni svo maður verði geðveikur,....það er hið fullkomna ábyrgðarleysi og innganga inní annan heim,....

Stjórnun

Ég er að láta stjórna mér,....AFHVERJU,.... það hlýtur að vera svona þægilegt.... (Birt án ábyrgðar)

Live Ships Map

Hann vill endilega kenna mér á Live Ships Map en hefur engan áhuga á því sem ég skrifa,....

10 júlí 2012

Afbrýðissemi

Afbrýðissemi.... ég er sjúklega afbrýðissöm, einn daginn hættir það, það er alltaf svoleiðis, einn daginn kemst maður í gegn og verður alveg sama og veit að enginn getur gert manni neitt, og að ég er fallegust og best í heimi án þess að skyggja á einhverja aðra.

Hekla

Fór til Heklu, hún var á sínum stað, komst ekki í göngutúrinn minn sennilega útaf ástsýki og einmanaleik.

Draumur

Dreymdi í nótt að mamma ætlaði að láta mig ferðast eitthvert fyrir klukkan tvö, sagðist ætla keyra mig heim tilað ná í passa og þessháttar, ég sagðist ekki hafa tíma en hún sagði það væri í lagi, svo var mynd af þresti í veskinu mínu og ég sagðist verða fara heim og ná í gleraugun og slíkt og þá voru Embla og Lillý pínulitlar á bleyjunni að klifra niður stigann, og ég held ég hafi átt að fara til New York og var með rauðu töskuna en komst ekki af því ég gat ekki farið en heldur ekki farið svona einsog ég stóð. Einsog það hefði kannski reddast.

05 júlí 2012

Getnaðardagurinn minn

Í dag er 5. júlí getnaðardagurinn minn, þá ætti ég að fara útúr bænum en hvort á ég fara í rútu eða í bíl, afhverju er þessi þráhyggja, Kristín kenndi mér að segja, einn daginn kemst ég,.... einn daginn varð Elísabet til og ég er hvít á puttunum. Og hvað er verra en dauðinn, að hanga sífellt heima á Facebók og komast ekki neitt.

Amen

Dreymdi ég var að tala við lækni sem kom í ljós að var Ingólfur Margeirsson, hann hló og mér fannst ég vera í Mjóddinni þegar ég var að tala við hann, svo dreymdi mig fullt í viðbót einsog fólk á svölum og eitthvað fleira, nú er sól og ég er að drekka kaffi og reyna að koma mér úr bænum eða ég ætla að prófa, ég sný þá bara við nema ég taki rútuna, og fer í sund fyrir austan fjall, ég er að læra að hugsa meira um mig, beina hugsunum mínum í átt til mín og hugsa um hvað étg þurfi og langi, amen.

04 júlí 2012

Draumur

Dreymdi Halldór Laxness í nótt, ég var uppí rúmi með honum og líka Linda og tvær eða tveir í viðbót, ég var mest að tala við hann. Svo sagðist ég ætla að koma aftur.

03 júlí 2012

Litla stúlkan með maníurnar

Litla stúlkan með maníurnar notaði alltaf eina og eina maníu í einu tilað lýsa líf sitt upp. Þegar hversdagsleikinn var að drepa hana þá tendraði hún eina maníu og fylltist ofurkrafti, hún sá allt í nýju ljósi, heimurinn hafði tilgang, hún varð falleg og gædd snilligáfu, hún var útvalin af guði til góðra verka og þurfti bara að komast í sjónvarpið tilað segja öllum að hún ætti að breyta heiminum, allt breytti um merkingu, mannanöfn, götuheiti og svo framvegis öðlaðist nýja og spennandi merkingu í ratleik sem Litla stúlkan með maníurnar stjórnaði. En svo dró ský fyrir sól, manían kulnaði og litla stúlkan með maníurnar var annað hvort svipt sjálfræði, lokuð inni á Kleppi eða hún bað sjáf um innlögn, þar ráfaði hún um ganga, iðraðist sáran, heimurinn varð aftur venjulegur og hún varð hún en ekki frelsari mannkynsins eða ástkona heimsins, þvílík leiðindi og svo fékk hún pillur. En svo kom að því að Litla stúlkan með maníurnar dró upp eina maníu úr pússi sínu og þá varð nú fjandinn laus og flugeldasýningarnar gátu byrjað, hún fékk aftur hlutverk í heiminum, fylltist ofurkrafti og tilgangurinn draup af hverju strái, það var hún ein sem bjó yfir þessu leyndarmáli, stundum töluðu blómin, og dýrin, orðin fengu aðra merkingu, stórbrotinn hugur hennar brann að lokum út.

Nafnið hans

vaknaði í morgun og það voru dvergar að hamra nafnið hans í heilann á mér.

02 júlí 2012

Eldsnemma morguns

Það var svartur köttur sem sat á götunni þegar við keyrðum útá flugvöll, hann sat þar í mestu makindum en hljóp ekki í veg fyrir bílinn, fyrir utan það að í minni fjölskyldu er svartir kettir happamerki og talan þrettán.

01 júlí 2012

Nýja tjörnin

Bjó til tjörn með bréfssnifsum, steinhjarta og rauðu blómi.