07 ágúst 2012
Burt
Vaknaði klukkan sjö og hefði getað farið á fætur en fór á fætur klukkan tíu og hitaði kaffi burstaði tenur og drakk mikið af vatni, fannst allt ofhlaðið í svefnherberginu og tók soldið niður, hugsaði um að fara burt, burt, burt.....
06 ágúst 2012
05 ágúst 2012
Nennum ekki að hlúa að ástinni
ég geri ekki annað en gagnrýna kærastann minn, hann vil að é hætti með honum, þessum látum við svona, við viljum þettta sé búið, haltu því til streitu en afhverju viljum við það, við nennum ekki að hlúa að ástinni.
02 ágúst 2012
01 ágúst 2012
ertu í vinnu við að hugsa um þetta mál
ég er alltaf að hugsa um ákveðið mál og í dag datt mér í hug, elísabet ertu í vinnu við þetta, ....
Eldavélin
ég er að bíða eftir að þvottavélin verði búin svo ég komist í sund, búin að mála 30 pöddur, kötturinn er fælinn, styggur, dreymdi draum þarsem bræðurnir rúnar, heimir, óskar sátu við eldhúsborðið en óskar varð fúll þegar ég spurði útí þetta með ísafjarðardæmið en eldavélin sýndi hið rétta. er ekki komin tími tilað fá vitið elísabet, góði guð raunveruleikaskynið fer í gegnum skilningarvitin. Og róna, ég meina ró ró ró.... andardráttinn.
31 júlí 2012
Þakka fyrir
Málaði pöddur í hádeginu. Sól. Reyni að komast í sund. Fer í sund. Kaupi eitthvað. Vaskaði upp. Reyndi að ná í Einar Örn, bjó ekki um rúmið, gott að hafa fimm mínútur þarsem ég gef guði daginn, fer yfir orkustöðvarnar, kaupi blóm. Þakka fyrir.
28 júlí 2012
Kalliði mig Væng
Amman: Embla hvernig finnst þér þegar þú ert kölluð prinsessa?
Embla: Ekki skemmtilegt.
Amman: En hvað má kalla þig?
Embla: Kalliði mig Væng.
Kistan
Amman: Ef þú heitir Vængur hvað heiti ég þá?
Embla: Kista, þú heitir Kista, hæ Kista.
Amman: Hæ Vængur.
Embla: Hæ.
Amman: En hvað er í þessari kistu?
Embla: Hún er lokuð.
Amman: Lokuð!?
Embla: Hún er læst!
Amman: Og getur enginn opnað hana?
Embla: Nei, enginn, nema þú.
Amman: Ég!?
Embla: Já, opnaðu lófana.
Amman: Opna lófana.
Embla: Opnaðu svo mallakútinn.
27 júlí 2012
26 júlí 2012
Ég ?
ég er svo feit ég þoli ég það ekki, mér finnst vera einhver önnur en ég er svo feit svo ógeðslega feit bólghin ogh þrútin oj oj hvar er ég.
25 júlí 2012
Smá dagbók
Skrifaði þrjár sögur í gær, ...... eftir alanonfund,..... soldið stirð en uppgötvaði sérsstöðu mína,.....razorsharp short-stories, minn tebolli, það er ekkert víst ég eigi eftir að skrifa þessa 1000 bls. bók sem mig dreymir um, nema nottla ég ætti að skrifa........ BIG BOOK OF MADNESS,.... Og skemmta mér, kærastinn minn er búinn að segja .............................alvarlegur rithöfundur milljón sinnum síðan ég sagðis vera það, pæla í því!!!!!!!
Jæja, þá afhverju er ekki hægt að gera bil, svaf og dreymdi mikið, nú er hádegi og ég nývöknuð, kannski kems ég í sund í dag, á eftir er fundur um Sýrland, bræður hans ÓSkars og mamma komin í kompaní, .......................
já, fékk mér lýsi, ómega, víTAMÍN, líþarex, kíkti aðeins á Þorlák en sá hann ekki, sit í hvítum kjól eða peysu, veit ekki hvort, er með GOTT KAFFI, ætla útbúa glerskápinn,
.... og hvað fleira. hmmmmmmmmmmmmmmmmm..... ja ja ja...... big book of madness.... hvenær kemur kærastinn í land, ætli hann sé hættur að elska mig, fattaði eitt í gær, að það er ekki spurning um ég treysti honum, heldur hvort ég treysti mér, ....
lífið er dásamlegt og það er sól að brjótast fram úr skýjum.
Soldið drasl
Í gær var ég að raða öllu og hengja myndir uppá vegg, é er að flilppa út á lyklborðinu mínu, fæ mér nýtt og prentara, en já uppgötvai ðí framhaldi af öllu raðinu að ég verð að hafa soldið drasl í vinnuherberginu mínu,......................
og hvít blöð flögrandi útum allt. Love. Elísabet
Soldið drasl
Í gær var ég að raða öllu og hengja myndir uppá vegg, é er að flilppa út á lyklborðinu mínu, fæ mér nýtt og prentara, en já uppgötvai ðí framhaldi af öllu raðinu að ég verð að hafa soldið drasl í vinnuherberginu mínu,......................
og hvít blöð flögrandi útum allt. Love. Elísabet
240.þús
Fékk bréf frá Tryggingasstofnun þeir ætla taKA AF MÉR 240. þús kall. Verði þeim að góðu litlu greynunum.
24 júlí 2012
23 júlí 2012
Til Rússladns?
Pabbi minn er gráhærður og galdraði mig gráhærða,.... ég er úlfur.
Töfrakonan vill bara ást,ekki töfraást,en um leið og hún verður ástfangin koma helvi´tis töfrarnir, og hún stingur höfðinu í sandinn og töfrarnir bíta hana í rassinn, já hvert á ég að fara, til Írlands, New York, Rússlands kannski. Já.
ekki almennilega vöknuð
ég er smámsaman að fatta að kannski er þetta sagnaheimurinn, en tréð hreyfist fyrir utan gluggann minn, norðaustan, bjó til hillu lítilla hluta í gær, ér+g er ekki almennilega vöknuð.
21 júlí 2012
ÉG vaknaði
þótt ég væri pínulítið hrædd um að vakna ekki aftur og spurði guð eða bað áðuren e´g fór að sofa: Viltu leyfa mér að lifa. Takk, pass, amen.
20 júlí 2012
Líkamsrækt og sund
Fór í líkamsrækt og sund, súpaði prótín drykk á eftir og kom við á Lindarbraut 10 og tók Ellu Stínu uppí, hún vildi fara skoða sæljónin með Óskari, við sættumst á húsdýragarðinn amk. svona í fljótu bragði séð, ætlaði að kaupa tösku handa mömmu en keypti uppþembulyf og hægðatregðulyf, setti sundbolinn til þerris útá tröppur og það er sól, Ella Stína vildi líka horfa í sólina, ég held ég teikni handa henni sæljón nei sól og leiki sæljón nema hún vilji gera það en Embla vildi heldur að ég segði sögu en hún og við fórum í bókabúðina og það var yndi að hafa hana svona lengi.
Embla kom í heimsókn
og við gengum útá Eiðistorg, ætluðum í fjöruna á leiðinni en hún var of stórgrýtt svo ég treysti mér með barnið, slysin gera ekki boð á undan sér, en það var einsog einhver hefði tekið til í fjörunni, kannski þessir fjórir mávar sem spígsporuðu þar um, og það var fjara semsagt, Embla á hlaupahjóli og ég með myndavélina, tek myndir af öllu núna, og við ræddum um það þegar við fórum síðast í fjöru, já hvenær var það nú síðast, spurði ég. Þegar ég gisti hjá þér, sagði hún. Já, sagði ég, var Óskar með?
Nei, svaraði hún, Óskar var ekki kominn í heiminn.
'
19 júlí 2012
sýnikennsla guðs
guð er að sýna mér hvernig ég varð geðveik, þetta er sýnikennsla guðs, hann vill að ég taki stjórnina í mínar hendur eftir að hafa gefist upp, ég er farin á bílnum,....
hey guð
hvernig vilt þú vera elísabet
?
æ bara að skrifa og stundum í kjól eða passa prinsessurnar og fara í sund, berja hausnum við vegginn svo blæðir úr en það var í gamla daga og nú er fortíðin að koma aftur þjótandi merkilegt mjög merkilegt, guð er að sýna mér eitthvað, hey guð.
Eintóm leiðindi
ég ætlaði að bjóða kærastnum á Lauighar vatn en hann vildi frekar fara í bónus og þoriði ekki með mér á mnnamót því ég er svo klikkuð afbrgýðissöm og hvatvís og halló halló halló einmtóm leiðindi.
Nú djás allirt hann hefur rétt fy rir sér.
17 júlí 2012
Minnsta málið
ég spurði leigubílstjórann hvort hann héldi í höndina á konunni sinni þegar þau færu í bíó og hvort hann væri því mótfallinn að hún héldi í höndina á honum. Minnsta málið, sagði bílstjórinn og svo fattaði ég að það var einsog hann væri að gera henni greiða.
Geturðu gert mér greiða.
Minnsta málið.
Leigubíl heim
Fórum í bió gær. Myndin var einsog venjulegu um það að dónaskapur og leiðindi lækni lömun, lífsleiða og svo leiðis. Nei ég er í fýlu, ég þurfti að taka leigubíl heim.
15 júlí 2012
Glerskápurinn
Óskar er að gera við gluggann í kjallaranum, og er búinn að setja borðstofuborðið inní stærsta herbergið og snúa glerskápnum þannig að hann fyllir útí hornið, mér finnst það ekki passa.
Hundrað pöddur
Ég er að mála pöddur, búin að mála næstum tíu pöddur, en samt eru þær ekki tilbúnar, ég held ég hafi komist að þvi hvar paddan býr, loðin og svört með marga fætur, skrautlegt mynstur. Ég ætla mála hundrauð pöddur.
14 júlí 2012
13 júlí 2012
Geðhjúkrunarkonan sagði
Orðið fyrir þungbærri reynslu sem veldur því að mig langar að eyða sjálfri mér.
12 júlí 2012
Draumur í bílskúr á Reynimel
Mig dreymdi litla stelpu svona 4 til 7 ára í bílskúr á Reynimel, í rúmi og hún var að segja sögur en pissaði stöðugt á sig, bunan stóð niður úr rúminu á gólfið, og við hliðina á rúminu var perralegur maður í gömlum snjáðum jakkafötum, ég kom þarna og spurði hann til nafns en hann vildi ekki segja hvað hann hét. En það var eitthvað skrifstofulegt við hann.
11 júlí 2012
Geðveikiheimurinn
Stjórna manni svo maður verði geðveikur,....það er hið fullkomna ábyrgðarleysi og innganga inní annan heim,....
Stjórnun
Ég er að láta stjórna mér,....AFHVERJU,.... það hlýtur að vera svona þægilegt.... (Birt án ábyrgðar)
Live Ships Map
Hann vill endilega kenna mér á Live Ships Map en hefur engan áhuga á því sem ég skrifa,....
10 júlí 2012
Afbrýðissemi
Afbrýðissemi.... ég er sjúklega afbrýðissöm, einn daginn hættir það, það er alltaf svoleiðis, einn daginn kemst maður í gegn og verður alveg sama og veit að enginn getur gert manni neitt, og að ég er fallegust og best í heimi án þess að skyggja á einhverja aðra.
Hekla
Fór til Heklu, hún var á sínum stað, komst ekki í göngutúrinn minn sennilega útaf ástsýki og einmanaleik.
Draumur
Dreymdi í nótt að mamma ætlaði að láta mig ferðast eitthvert fyrir klukkan tvö, sagðist ætla keyra mig heim tilað ná í passa og þessháttar, ég sagðist ekki hafa tíma en hún sagði það væri í lagi, svo var mynd af þresti í veskinu mínu og ég sagðist verða fara heim og ná í gleraugun og slíkt og þá voru Embla og Lillý pínulitlar á bleyjunni að klifra niður stigann, og ég held ég hafi átt að fara til New York og var með rauðu töskuna en komst ekki af því ég gat ekki farið en heldur ekki farið svona einsog ég stóð. Einsog það hefði kannski reddast.
05 júlí 2012
Getnaðardagurinn minn
Í dag er 5. júlí getnaðardagurinn minn, þá ætti ég að fara útúr bænum en hvort á ég fara í rútu eða í bíl, afhverju er þessi þráhyggja, Kristín kenndi mér að segja, einn daginn kemst ég,....
einn daginn varð Elísabet til og ég er hvít á puttunum. Og hvað er verra en dauðinn, að hanga sífellt heima á Facebók og komast ekki neitt.
Amen
Dreymdi ég var að tala við lækni sem kom í ljós að var Ingólfur Margeirsson, hann hló og mér fannst ég vera í Mjóddinni þegar ég var að tala við hann, svo dreymdi mig fullt í viðbót einsog fólk á svölum og eitthvað fleira, nú er sól og ég er að drekka kaffi og reyna að koma mér úr bænum eða ég ætla að prófa, ég sný þá bara við nema ég taki rútuna, og fer í sund fyrir austan fjall, ég er að læra að hugsa meira um mig, beina hugsunum mínum í átt til mín og hugsa um hvað étg þurfi og langi, amen.
04 júlí 2012
Draumur
Dreymdi Halldór Laxness í nótt, ég var uppí rúmi með honum og líka Linda og tvær eða tveir í viðbót, ég var mest að tala við hann. Svo sagðist ég ætla að koma aftur.
03 júlí 2012
Litla stúlkan með maníurnar
Litla stúlkan með maníurnar notaði alltaf eina og eina maníu í einu tilað lýsa líf sitt upp. Þegar hversdagsleikinn var að drepa hana þá tendraði hún eina maníu og fylltist ofurkrafti, hún sá allt í nýju ljósi, heimurinn hafði tilgang, hún varð falleg og gædd snilligáfu, hún var útvalin af guði til góðra verka og þurfti bara að komast í sjónvarpið tilað segja öllum að hún ætti að breyta heiminum, allt breytti um merkingu, mannanöfn, götuheiti og svo framvegis öðlaðist nýja og spennandi merkingu í ratleik sem Litla stúlkan með maníurnar stjórnaði.
En svo dró ský fyrir sól, manían kulnaði og litla stúlkan með maníurnar var annað hvort svipt sjálfræði, lokuð inni á Kleppi eða hún bað sjáf um innlögn, þar ráfaði hún um ganga, iðraðist sáran, heimurinn varð aftur venjulegur og hún varð hún en ekki frelsari mannkynsins eða ástkona heimsins, þvílík leiðindi og svo fékk hún pillur.
En svo kom að því að Litla stúlkan með maníurnar dró upp eina maníu úr pússi sínu og þá varð nú fjandinn laus og flugeldasýningarnar gátu byrjað, hún fékk aftur hlutverk í heiminum, fylltist ofurkrafti og tilgangurinn draup af hverju strái, það var hún ein sem bjó yfir þessu leyndarmáli, stundum töluðu blómin, og dýrin, orðin fengu aðra merkingu, stórbrotinn hugur hennar brann að lokum út.
02 júlí 2012
Eldsnemma morguns
Það var svartur köttur sem sat á götunni þegar við keyrðum útá flugvöll, hann sat þar í mestu makindum en hljóp ekki í veg fyrir bílinn, fyrir utan það að í minni fjölskyldu er svartir kettir happamerki og talan þrettán.
01 júlí 2012
29 júní 2012
28 júní 2012
bros
er pínu hrædd svo það er best að fara í göngutúr, og pínu hamingjusöm líka, kveikti á útvarpinu, vaskaði upp, sat útá tröppum í sólinni, fékk mér kaffi, braut saman nærbuxur, gerði magaæfingar. get sagt þetta hér fyrst enginn les þetta, bros.
27 júní 2012
stórtíðindi
synti kílómeter, ótrúlegt afrek, 20 bringu, 10 bak og tíu bakskriðsund og fékk mér orkudrykk á sundlaugarbakkanum, gekk útá sögu og náði í hárkamb og keypti mér rúgbrauð í melabúðinni og losandi já einmitt í apótekinu og labbaði svo heim og hingað er ég komin,... með soldið mikið af hugsunum sem eru allar óþarfar því það er enginn dauður enn. sætt og elísabet ég elska þig.
26 júní 2012
Sólar lífið
fór í sund í dag og ætlaði ekki að geta synt, svo kom spurning hvernig má koma fram við elísabetu jökulsdóttur þegar ég var að synda ferð númer 19 og afhverju ég ætti að gera þetta sem ég hef verið beðin um en ákvað að láta það í hendurnar á æðri mætti. Og fékk mér svo malt á eftir. Það var dýrðar sól og ég gat synt þótt ég væri þunglynd í byrjun. Elska lífið.
26.júní
Á tröppunjum í sólinni á svörtum púða og hvít blóm klippt af runna í ungversku könnunni á bak við mig, neitaði kókflösku áðan, með kaffið mitt á kollinum og fuglarnir komnir á sinn stað og tjörnin sem Embla bjó til glitrar í sólinni.
25 júní 2012
Jónsmessan
reyndist göldrótt, ég uppgötvaði soldið sem hafði lengi hvílt á mínum huga, það leystist og ég sá hvað var raunverulega á seyði, ....
svo settist ég á rúmið og þá kom soldið gott svar, vonandi er það rétt, ég var dauðsyfjuð þegar ég kom heim frá því að passa Lillý og þá voru fuglarnir ennþá úti og inni var allt dótið á víð og dreif á gólfinu, það var eitthvað svo yndislegt, ég setti það í hattaöskjuna og fór að sofa, tók eina fennegan og eina serókvel, Embla var hér í heimsókn og við fórum í afmæli til Ronna, og löbbuðum alla leiðina, þar á undan fórum við í Nóatún og Apótekið og keyptum afmælisgjöf.
Það var svo gott að fá Emblu aftur í heimsókn, hún hefur ekki komið svo lengi, svo vaknaði ég einsog venjulega með Heklu á heilanum og litla mígreni rúsínu í þriðja auganu og fór alltíeinu að pæla í hvort ég ætti að heimsækja Önnu Siggu á Ísafirði og dansa fimm ryþma dans.
24 júní 2012
Vaknaði
Vaknaði kúrði lengur fékk mér malt og tvær engifersöl fór á fætur hellti uppá kaffi fékk mér fullt af vatni með klaka. Er ég í eyðimörk? En burstaði líka tennurnar, tók lyfin, vítamín og leit örugglega útum gluggann.
Jónsmessunótt
JÓNSMESSUNÓTT
Ljósblár spegilsléttur sjór
og hvít sængurföt
ekkert um hjartað.
Ljósblár spegilsléttur sjór
hvít sængurföt
blóðrautt.
... og þetta er sennilega best,...
Ljósblár spegilsléttur sjór
hvít sængurföt
hjartað slær ekki.
Draumabrot
Aðfaranótt laugardags dreymdi mig eitthvað afa og ömmu á Reynimel, og eitthvað fleira, jú Rúnar Guðbrandsson en man ekki meir eða hvað gerðist.
23 júní 2012
Halló
Í dag á ég edrúafmæli 19 ár og sjö mánuðir, sólin skín, grái kötturinn okkar mjálmar í grasinu, ég keypti malt og melónu, og datt í hug nýtt leikrit, um reiða konu sem segir: Hann hefur flætt yfir líf mitt og ég er að reisa flóðgarða, en sólin skín og ég sit á tröppunum og ætla passa Lillý í kvöld og var að hugsa hvað það væri gaman ef Embla gistir og við getum búið til litla tjörn, og hvað ef skvísurnar hans Kristjóns kæmu, halló.
22 júní 2012
21 júní 2012
Hún sjálf var ástin
En afhverju var hún svona reið, hún hefur bara orðið reið út af einu, að hann flæddi inní líf hennar einsog fellibylur og ástin hennar hefur ekki sést. Ástin hennar hefur horfið og hún sjálf var ástin.
frjálst
ella stína var á ellu stínunum á ellu stínu sem sjón dró í gegnum ellu stínu tilað komast heim á ellu stínu, ella stína treysti sjón tilað koma henni undan ellu stínu en hún vildi allsekki vera þessi ella stína sem var á ellu stínunum á ellu stínu og óttaðist að hún myndi ná þeim og kaffæra þau í ellu stínu svo bara ef þau kæmust heim og gætu lokað ellu stínu yrði allt gott og ella stína gæti byrjað að skrifað um það hvernig er að hafa ellu stínu á ellu stínunum svo hún geti ekki um frjálst ellu stínu strokið.
Hver er presturinn?
Ella Stína vill bara komast heim til sín tilað geta skrifað undir verndarvæng Sjón, sem sagði að hlutirnir mættu vera súrealískir, en hún er að flýja undan presti og getur verið að þessi prestur sé annar en hann er.
Og hver ekki
Ella Stína dró Ellu Stínu gegnum Ellu Stínurnar, hún var á leið heim á Ellu Stínu þarsem ríkti Ella Stína og enginn kæmist tilað trufla hana, þessvegna munaði miklu að komast undan prestinum sem var að elta Ellu Stínu og Ellu Stínu og enginn vissi hvað hann hugðist fyrir en hann hafði verið dæmdur fyrir Ellu Stínu, alveg voðalegt Ellu Stínu og var ekki vel þokkaður, svo Ella Stína var soldið rugluð útaf þessu öllu saman og vissi ekki alveg hver var Ella Stína og hver ekki.
Hann sá mig minnka
Ella Stína var á snjóþotu og Sjón dró hana gegnum snjóskafla, á eftir þeim var prestur sem hafði verið dæmdur fyrir ofbeldisverk gagnvart konu, hann virtist vera að reyna að ná Ellu Stínu, ef presturinn var fortíðin hvað var Sjón þá, skáldskapurinn? Eða súrrelaisminn, Ella Stína hafði verið á bar og hafði drukkið þar ótæpilega þegar presturinn kom og hótaði að berja hana, Ella Stína flúði út og beint í flasið á Sjón sem var að væflast með snjóþotu og hún hoppaði rakleiðis á snjóþotuna, heim sagði hún, heim á Framnesveg, hann reynir að ná okkur, hver er það spurði Sjón. Ég held það sé barþjónninn, sagði Ella Stína. Barþjónninn? Já barþjónninn. Nú hvernig stendurðu á því, afhverju varst þú á barnum, þú er bara barn, ég er barn á barn...um, sagði Ella Stína, en það var þannig að ég var kona og varð að minnka mig og ég minnkaði mig alveg niðrí Ellu Stínu, ég var með þessu manni uppí sumarbústað af því ég elskaði hann, elskaðir þú mann, þú ert bara barn, já en manstu ekki að ég minnkaði mig, sagði Ella Stína, ég breytti mér í barn, eða konan breyttist í barn, hvar er konan núna, spurði Sjón, hún vill komast heim, hún er svo viðkvæm þessi kona, hún þolir bara að vera hún sjálf þegar hún er heima hjá sér og óhult frá þessum manni,en afhverju er hann að elta hana ef þú ert bara barn, hann sá mig breytast,hann sá mig minnka.
Tilbúin....
...tilbúin að fara útúr húsinu,....hafði greitt á sér hárið farið í bað lokað gluggunum lesið ævisögurnar raðað diskunum ry
Tilbúin
Allt í einu fann ég að ég var tilbúin að fara útúr húsinu, að ég var tilbúin, ég hafði verið að láta líða úr mér og passa það, öll þessi ár, eftir að þeir fluttu burtu. Allur þessi tími, þessi góði og göldrótti tími með gleði og sorgum, mat og ekki mat, mamma og ekki mamma, fótbolti og körfubolti og handbolti og glíma og prakkarastrik og sjónvarp og tölvur og stelpur og raddir og fótatak, það er alltí lagi að ég sé ég, ég má alveg taka mér tíma að nú sé þessi tími liðinn og ég geti farið burtu.
Tvær bumbur
Mín bumba er einsog ég sé komin níu mánuði á leið, segir hann og klappar sinni bumbu sem hann segir velmegunarbumbu.
Góðan daginn
Í dag þegar ég vaknaði um eittleytið og fór niður og fékk mér kaffi og þá spratt ósjálfrátt hátt og snjallt og ég breiddi út faðminn: Góðan daginn.
Það var við norðurgluggann, þar sem ég bíð eftir hvítu blómunum.
Mitt líf að kremjast á milli
Dreymdi ég var með manni sem ætlaði að sýna mér hvernig ofbeldi væri, með því að þykjast kýla mig mörgum sinnum í andlitið en hann var bara að þykjast og spurði viltu þetta og hættu að vilja þetta. Og ég fann ég vildi það ekki, þetta var tortímandi viðbjóður og í draumnum var þetta IB. Þetta er ekki góður draumur, ég er baraa upptekin af ofbeldi og ekki ofbeldi og mitt líf að kremjast á milli. Svo var í draumnum mín fyrrverandi kirkja eða eitthvað líkt henni. Og ég held líka að ég sé með einhverskonar þrumuleiftur....
ha, þrumuleiftur, já en hvar er mitt þrumuleiftur og vinstri höndin hreyfir sig vitlaust og maginn er of stór, hvað geri ég ég er búin að hugsa um það í mörg ár að láta taka ljósmyndir af mér, eða í fjögur ár og árin hafa bara liðið og ég hef líka hugsað um að fara í líkamsrækt en sömu ár hafa liðið.
20 júní 2012
bannað að skammast
ég er í banni að skamma sjálfa mig, og vera upptekin af öðrum, ég er í fyrsta sæti.
paddan
hulda og laufey komu í morgunkaffi og lásu pödduna. það var gaman. margt sem ég sá, held að aðkomukonan hafi breytt sér í pöddu en hvað þá með heimakonuna. lífið er dásamlegt og ég á leiðinni í sund ef ég kemst, fór á fund í hádeginu, það var kraftaverk. soldið feimin, dreymin og dró seiminn, nei djók. og maðurinn útá sjó.
19 júní 2012
Sjálfstraustið
Það er nú merkilegt hvað sjálfstraustið getur horfið, kemur það við að vakna á morgnana klukkan níu eða hvað, þegar maður er upptekin af einhverjum öðrum endalaust, ég er stundum svo lítil þótt ég sé stór. Og ég var að naglalakka mig, það er rosalega fínt, alveg klassi, var í handsnyrtingu og nuddi handanuddi og naglabandasuddi og spjallaði við dömuna sem handgerði mig, hand made Elisabet, og ég kann ekkert á myndavélina hver getur kemmt mér á hana og mig dreymdi ekkert í nótt, það er þriðjudagur, og hvað á ég að fara skrifa næst.
18 júní 2012
að hugsa til þess
mér finnst svo voðalegt að hugsa til þess að við eigum eftir að deyja, við höfum elst og tíminn hefur liðið og stoppar ekki, þess vegna finnst mér gott að hugsa um hann.
Kaffið mitt
Ég er alltaf í samanburði og keppni við hann, mér finnst hann tildæmis mikið merkilegri en ég, svoleiðis var það líka með Inga, enda gerir hann lítið úr kaffinu mínu,.....
Draumur
Daginn eftir Óskar fór dreymdi mig hann í skipstjórastól, svo fór hann niður einsog kippt væri í spotta.
Að vera sæt
Fara í andlitshreinsun, fót og hand, litun, plokkun og nudd, horfa á eitthvað fallegt, lesa bækur, fara útúr bænum, ekki vera hrædd.
Sambandið
Fór í rúmið klukkan eitt, kíkti í rithöfundabók sem Pétur Blöndal gaf mér og svaf svo, vaknaði um sjö leytið held ég og fannst sambandið vera búið, fór aftur að sofa. Svaf vel og svaf til hádegis, það var undursamlegt, hitaði mér kaffi og fékk fyrirspurn hvort ég gæti passað Lillý.
Suðurgata 8a
Dreymdi ég bjó í Suðurgötu og búið að jarða Óskar og ég að koma heim og Kiddi sem er nýlátinn spurði hvort hann mætti koma og gista en ég sagði mig langaði að vera ein eftir jarðarförina, svo mætti hann koma og leggja sig, svo var einhver stelpa líka sem var svipað ástatt fyrir og Kidda sem vildi fá að vera, en allavega ég kom inn og uppgötvaði það var búið að breyta öllum gluggum þannig að þeir voru hættulegir fyrir börn en hægt að hleypa meira lofti inn um þá. Svo var ég þarna.
15 júní 2012
sól úti
það er sól úti og ég er eftir mig óendanlega þreytt og með þursabit því ég þoli ekki ástina eða hvað er það sem ég þoli ekki þessa endalausu spennu og svo er ég alltaf í stríði við sjálfa mig. Hér kemur stríðið.
ég. afhverju ertu í stríði.
ella stína. ég vil ekki verða stór.
ég. afhverju ekki.
ella stína. þá teygist úr mér og ég stækka og það er sárt.
ég. en það er sárt að vera alltaf svona lítill.
ella stína. þá verð ég að kveikja á kerti ef ég stækka.
ég. og er það ekki fínt.
ella stína. fínt.
ég. já kveikjum á kerti og stækkum pínulítið.
ella stína. hvað er að stækka.
ég. viðurkenna hvernig manni líður.
ella stína. ég viðurkenni aldrei neitt.
ég. þá verðurðu eftir.
ella stína. ég vil vera eftir.
ég. en þá geturðu dáið, frosið í hel.
ella stína. það er gott.
ég. kveikjum á kerti handa frostinu.
ella stína. bara pínulitla stund.
ég. já. pínulitla stund.
skilin eftir tilfinningaalega
og svo var farangur hans yfirfarinn, leyndist hún einhverstaðatr í tödskunni.
12 júní 2012
Lillý á Kaffivagninum
Ég og Líllý fórum í göngutúr á bryggjuna í gær sáum báta og fengum okkur kaffi á kaffivagninum og þar dugguðu rugguðu bátarnir.
11 júní 2012
150 kíló
Hann segir hún sé hundrað og fimmtíu kíló á lyfjum og geðlyfjum og hin er líka hundrað og fimmtíu kíló en var spýta áður.
10 júní 2012
Lillý og fótboltinn
Sá fótboltaleik í gær, svo mikil frelsun, að horfa, gleyma sér og var að passa Lillý, hún fór hamförum um íbúðina opnaði alla skápa lyfti lóðum lék sér að öllu dótinu, borðaði banana hló og skríkti og bræddi mitt ömmu hjarta.
09 júní 2012
Hlaðgerðarkot
Fór í Hlaðgerðarkot, helgur staður, sóleyjar og steiktur fiskur, sjúkdómurinn í öllu sínu veldi og vonin vonin vonin....
08 júní 2012
Herðakistillinn
Ég er komin með herðakistil því hjarta mitt neitar að opnast, það er reyndar ekki spurning um það heldur er hjartað horfið og þá get ég ekki verið ég sjálf hedlur einhver önnur leiðindagella í staðinn fyrir þetta djúsí fyrirbrigði sem ég er ég, svo á ég vera ástfangin af mér og nú nú nú.
07 júní 2012
gekk ekki sem skyldi
ég og hann fórum í bíó í gær og það gekk ekki sem skyldi, það var björt júnínótt
06 júní 2012
rifrildi, norðanátt og sættir
ég reifst við manninn minn, hann sagði ég væri hrædd, og afhverju ég væri reið, ég sagðist vera hrædd hrædd við að hverfa og mást út í sambandinu og detta inní ástsýki, en svo er komin norðanátt og trén sveiflast í vindinum og áðan sýndist mér trilla í vandræðum. maðurinn minn er að bólstra stólana, ég lagði mig, það er sigur, mér finnst ég alltaf þurfa að vera gera eitthvað, og það er að koma nýtt barnabarn.
05 júní 2012
Já, ég byrjaði í sambúð eftir 20 ára hlé og síðan hef ég verið upptekin við að færa hluti til og frá eða býsnast yfir því að hann færi hluti til og frá, það er búið að vera sól í tíu daga svona steikjandi og ég þarf að fara uppá skattstofu og ganga frá virðisaukaskattskýrslu og síðan ætlaði ég að að búa til handrit af Ellu Stínu sögum, ég er auðvitað dauðhrædd við ástsýkina og meðvirknina og afhverju þarf ég alltaf að vera hrædd, þetta hefur verið dásamlegt hús, er ég að geðjast honum með því að vera hrædd.... eða reið. Ég veit ekki hvort ég get alltaf verið að pæla í hlutunum, það gerir mig geðveika enda fór ég inná geðdeild í fimm daga,....með geimveru sem ég fékk lánaða hjá litlu frænku minni og horfði á sjónvarpið og varð sæt af því og er núna að hugsa um að kaupa mér Barbídúkku.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)