16 apríl 2007

16.apríl

Í dag er 16.apríl. Þá á Ella Stína afmæli og 16.apríl hljómar einsog fuglasöngur, einsog töfraorð, einsog eitthvað undursamlegt, já, þá kom hún fljótandi í heiminn hjá ljósmóður, Chaplin á líka afmæli 16. apríl, Ella Stína og Chaplin og trúi því hver sem vill en Ella Stína var einu sinni máluð einsog Chaplin og kom svoleiðis í sjónvarpinu en allavega Ella Stína á afmæli í dag.

Og sérstaklega Elísabet, hún er 49 ára í dag,

með sól í hrúti
merkúr í hrúti
tungl í fiskum
venus í fiskum
marz í vatnsbera
júpíter í vog

rísandi krabbi og steingeit á miðhimni

og flugdreka í stjörnukortinu.

La la la la la....

2 ummæli:

Hringbrautin sagði...

Til hamingju með afmælið snillingur villingur.

Veistu að það er til bíómynd um Ellu Stínu. Þú færð hana í afmælisgjöf frá mér.

Katrín sagði...

Er Heimsveldið nokkuð liðið undir lok? ;)