13 júní 2007

Ella Stína er feimin nörd

Vinkona mín sagðist ekki geta orðið hrifin strák ef hann er feiminn nörd. En hvers eiga feimnir nördar að gjalda, ef hann er tildæmis sætur, ókei ekki nógu að vera sætur, eða góður, ókei, ekki nóg að vera góður. Ég er tildæmis feimin nörd. Ég vil alltaf vera skrifandi og vil helst ekki fara neitt af því þá er ég ekki skrifandi, mér finnst að vísu gaman að fara á fótboltaleiki. En flest annað, úff. Þá þarf maður að hafa sig til og hætta að skrifa. Svo á ég engan sjéns ef ég er feimin nörd.

4 ummæli:

Katrín sagði...

þú þyrftir endilega að prófa að slétta á þér hárið ;)

K8

Nafnlaus sagði...

ókei, verður þá einhver skotin í Ellu Stínu ef hún er feimin nörd með slétt hárið. og svo ættirðu að sjá hárið á mér, það er einsog á hesti, villihesti sem þýtur um slétturnar....

Ella Stína feimin nörd með óslétt hárið.

hey, viltu kannski koma og slétta það.

elísabet

Katrín sagði...

Já,.. ég skal slétta á þér hárið.. kannski um helgina, jafnvel eftir sund-stund?

Svo þarftu að hætta að bíða eftir höfnuninni... farðu heldur að þeysast um, þú villti villihestur!

Te við tækifæri í sófanum góða:)

K8

Nafnlaus sagði...

Þetta var gamla Ella Stína, þessi gráhærða og tannlausa sem bíður eftir höfnun, hin er alveg púff sama, já förum í sund, ég fór í gær og synti 30 ferðir, ég get sagt þér tíðindi í heita pottinum, það er ekkert ástarkjaftæði, he he he. gaman að heyra frá þér fagra dís. Helena vill ég að dansi.

Elísabet.