08 júní 2007

Fínt eða ekki fínt

Einu sinni var kona sem hringdi í mann og spurði hvort hún mætti kíkja í kaffi til hans, hún væri samasem fyrir utan en maðurinn sagði að það væri ekki nógu fínt inni hjá honum en hann væri á leiðinni út að borða og spurði hvort konan væri búin að borða. Þá sagðist hún ekki vera nógu fín.

Spurningin er: Mun þetta fólk einhverntíma ná saman. Og hvað þarf að gerast tilað svo verði?

Ég á ekki von á svörum frekar en venjulega. (Biturleiki!!!) En ég bið ykkur um að íhuga málið. Og fara fínt í þetta.

ps. Konan sagðist vera komúr afmæli sem var satt en málið var að henni fannst hún ekki nógu fín en sagði það ekki. Svo allra heimilda sé getið.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Is it a true story?
luv, ER

Nafnlaus sagði...

já þetta er sönn saga og það er vesen í henni. kannski finnst manninum aldrei nógu fínt hjá sér og kannski finnst konunni hún aldrei nógu fín svo kannski fjarlægjast þau...

hvað er til ráða...?

frá ellustínu