15 janúar 2008

Kærleikssambandið

Fór snemma að sofa, klukkan níu, vaknaði klukkan níu og kúrði til tíu, leit þá uppí risloftið og fannst það vera einsog líkkista svo ég fór á fætur, burstaði tennur, lýsi etc. Hlustaði á útvarpið og náði í skóflu úr geymslunni, bjó um rúmið, bað bænirnar, pakkaði inn dúk handa Greg, fann föt sem passa vel í snjónum og sjást vel ef hausinn þarf að vera uppúr skafli.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

I like that!
kb

Nafnlaus sagði...

ohhh....komst líka heim á skóflunni, engir kústar hér ónei.

Nafnlaus sagði...

ég er bara alltíeinu orðin leið á þráhyggjunni, skófla henni burt með snjónum, ótrúleg leiðindi, raunveruleikinn er bezzzzzz....

Nafnlaus sagði...

ég vaknaði upp og fór í tölvuna, er ég orðinn tölvufí-fí-fí-óna?

annars allt hljótt og ég í kærleikanum. úppf.

Nafnlaus sagði...

Hitti Guðberg í strætó í dag, við vorum sammála um það reginhneyksli að ekki væri búið að gefa út síðasta handritið hennar.

skandale. Finale.