27 janúar 2008

Stundum hlæjum við guð saman

Venjulega er það guð sem byrjar og hlær að mistökum mínum. Og það bregst varla að þá fer ég að hlæja líka.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nafnlaus said...

Kæra Elísabet, ég veit ekki alveg hvernig ég á að orða þetta en ég hef verið aðdáandi þinn í mörg ár. Ekki bara aðdáandi skrifa þinna heldur líka bara aðdáandi þess að þú ert alltaf þú sjálf. Mér er nokk sama hvort þú ert á geðdeild eða hvar þá ert. Þú hefur hugrekki til að vera þú sjálf. Ekki hætta að vera þú sjálf. Þú talar opinskátt um sjálfa þig og veikindi þín. Ég er einn af þessum karlmönnum sem hef líka átt við svona að stríða. Ég veit ekki hvort það er nákvæmlega sama og ég á við að stríða.....skiptir ekki máli. Haltu bara áfram að skrifa og blogga okkur hinum til gleði.

Ekki láta neinn segja þér að þú sért ekki merileg eða annars flokks, ég þekki þesssar raddir líka.
Haltu bara áfram, okkur hinum til gleði og lífssauka.

Gangi þér vel og haltu áfram að vera þú sjálf, þannig ertu flottust.

p.s Einu sinni gaf ég einni stelpu sem ég var skotinn í bók eftir þig, held að það hafi verið Galdrabók Ellu Stínu. Ég hélt að hún myndi sjá ljósið með snilld þinni en svo fór nú ekki.
Eftir á að hyggja þá sé ég ekkert eftir að hafa gefið bókina því ég hef alltaf haft það að leiðarljósi að gefa bækur og mun halda því áfram vegna þess að bók er ekki e-ð sem maður leggur frá sér eftir lestur, heldur vill maður að fleiri njóti góðs af.
Blessi þig

Leynilegur aðdáandi

5:04 AM
Nafnlaus Nafnlaus said...

Merileg á að vera merkileg

5:09 AM

Elísabet sagði...

Leynilegur aðdáandi, ekki svo lítið, takk fyrir þín fögru orð,

var að vakna, Elísabet

Nafnlaus sagði...

hæ,
þú ert frábær í þættinum mér finnst
það sem þú segir opnar huga minn og gáfur þínar eru frábærar, takk kærlega, þúsund þakkir
jaguar

Elísabet sagði...

takk fyrir Jagúar, opna höfuð, það er fallegt, ellastína

Nafnlaus sagði...

já ég er búin að vera þjálfa þessar gáfur, ...;) gáfur eru ekki bara gáfur, Ella Stína hefur Ellu Stínu gáfur.

ekj

Nafnlaus sagði...

ég horfði aftur á þáttinn mér finnst, aldrei hef ég heyrt þetta áður, að einhver segði: kannski er ástin veik tilfinning sem þarf að hlúa að, og þetta er eitt það fallegasta sem ég hef heyrt um ævina, og mikilvægasta, takk
gangi allt að óskum
jagúar

Elísabet sagði...

já, ég var alveg hissa þegar þetta hrökk útúr mér, ...